Ægir - 01.09.1929, Blaðsíða 23
ÆGIR
199
þá að miklum mun og munu gera það
á næstu árum.
Eg hefi bent á það í annari grein í
þessu blaði Ægis, hvað meðalverð íisk-
framleiðslu okkar væri lágt borið sam-
an við verð það, sem fiskiveiðaþjóðir fá
fyrir framleiðslu sína, og eitt ráðið til
að jafna þennan mismun er að nýta af-
urðirnar sem bezt og gera alt að verð-
mæti, sem nothæft er, þó að i fljótu bragði
sýnist smávægilegt.
Það þarf enginn að bera íslenzkum
fiskimönnum það á brýn að þeir standi
að baki fiskimönnum annara þjóða i
dugnaði eða sjósókn, því þar standa þeir
fyllilega jafnfætis þeim, sem lengst eru
enn komnir, sömuleiðis hafa þeir á seinni
árum fylgst vel með og tekið þau nýj-
ustu og beztu framleiðslutæki i þjónustu
sína og þó að hingað til hafi orðið frek-
ar vankvæði á því, að framleiðslan hafi
verið fullnotuð eða það verðmæti hafi
fengist fyrir hana, sem hægt hefir verið
að fá, þá má þó búast við, að á þessu
verði nokkur bót, eftir því sem meiri
reynsla fæst og þekking manna eykst á
þessu sviði.
K. B.
Skólaskipið „Köbenhavn“
talið af.
Öll von er nú úti um að finna skóla-
skipið »Köbenhavn«, sem leitað hefir
nú verið að rúmt hálft ár. Fregnir bár-
ust eitt sinn um, að skipið hafi sést við
eyjuna Trislan da Cunha, en sú fregn
reyndist röng. Var það finskt skip, sem
hafði sést á þessum slóðum. Austur-Asíu-
félagið hefir nú látið hætta leitinni og er
nú talið víst að skipið hafi farist. »Kö-
henhavn« fór frá Buenos Ayres 14. des-
ember s.l., og voru 45 ungir menn með
skipinu. Voru þeir að læra sjómensku
og áttu síðar að ganga í þjónustu Aust-
ur-Asíu-félagsins. — Blöðin í Kaupmanna-
höfn hafa nú birt nöfn allra þeirra, sem
á skipinu voru.
(Sendiherrafrétt).
Þegar það fréttist, að »Köbenhavn«
hefði sést mannlaus undir seglum við
Tristan da Cunha 21. jan. ’29, mátti ganga
að því vísu, að hér væri ekki rétt skýrt
frá.
Danir eru taldir meðal bestu og þrifn-
ustu siglingamanna í heimi; prúðmenska
sú og dirfska, er þeir hafa sýnt skipreika
fólki á sjó, er á margan hátt viðurkend.
Þeir, sem ráðin höfðu á »Köbenhavn«,
hefðu aldrei og hafa aldrei yfirgefið skip
sitt þannig, að segl hefðu verið látin
standa, þeir hefðu aldrei aukið hættu
stéttarbræðra sinna á hafinu með því að
gera mögulegt, að það gæti hreyfst frek-
ar, en vindar og straumar báru hið
mannlausa skip (derelict).
»Köbenhavn« er nú komin á hinn
mikla lista yfir horfin skip, og enginn
kemur til að skýra frá hvernig slys það
vildi til. S. E.
Ný lög í Danmörku.
þau lög ganga i gildi í Danmörku, hinn
1. janúar 1930, að skipunarorð við stýri
skulu vera — stjórnborða og bakborða,
þannig, að sé skipun stjórnborða, þá snú-
ist skipið til hœgri, en til vinstri, þegar
skipunin er bakborða.
Pannig er úr sögunni hið marg um-
rædda hœgri og vinstri í Danmörku og
gömlu orðin fá að halda sér, þótt verkun
sé önnur.