Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1929, Blaðsíða 13

Ægir - 01.09.1929, Blaðsíða 13
ÆGIR 189 skpd. (700). Þarna er því um ágætisafla að ræða, og segja kunnugir að þeir muni ekki aflasælli vorvertíð. Arnarfjörður. í sumar hafa gengið frá Bíldudal 3 þilskip á færaveiðar og ca. 40 opnir vélbátar til og frá úr Arnarfirði. í fyrra voru þilskipin 5 og bátarnir um 30. Afli 1 júlí talinn um 2100 skpd. (1600).J) Ágætisafli á þilskipin, enda höfðu þau og fleiri menn undir færi en Patreksfjarðarskipin, sömuleiðis öfluðu °pnu báturnir mjög vel. Þetta er talið eitt af beztu afla*árum i Arnarfirði. Dýrafjörður. Þaðan gengu 5 þilskip í sumar, og 4—5 smávélbátar í vor, en Þeir munu ekki hafa byrjað róðra fyr en f mai. S. 1. ár gengu þaðan 6 þilskip auk 2 stærri vélbáta svo og 6—8 smáir bátar. Áfli frá apríl-byrjun, er þilskipin lögðu ht. til júní-loka um 960 skpd. (1370). Yfirleitt góður afli á þilskipin. Onundarjjörður. í vor gengu þaðan 1 Þilskip og 1 30 lesta vélb , 7 minni vél- hátar og 2—3 árabátar. í fyrra var báta- ialan þarna mjög svipuð. Afli frá 1. apríl 111 1- júlí 1190 skpd. (1200). Má það telj- ast mikið góður afli. Súgandajjörður. Þaðan gengu 10 vél- uiur, og er það einum minna en s. 1. Vor, svo og 2—4 smávélbátar er eigi 8eugu þá. Afli frá april-byrjun til loka júnímán. u,u 1000 skpd (910). Ennfremur aflaðist Uqi ^0 þús. af steinbít yfir vorvertíðina, °8 er það með allra mesta móti. í Ön- Judarfirði aflaðist og mikið af steinbít. ® yfirleitt teljast góð vorvertíð í báðum essum veiðistöðum. Aflinn s, 1. ár mun hafa verið nokkuru e>ri en 1600 skpd. 1. júli, samkv. skýrslum paðan síðar á árinu. Bolungavik. Útvegur þaðan á voiver- tíðinni var: 1 vélb. yfir 30 lestir (er var þó ekki á veiðum alt vorið). 15 vélbátar undir 12 lestir, 2 smávélbátar, og um 9 árabátar. Síðastl. vor, voru taldir 15— 16 vélb. og um 20 opnir bátar í Bolunga- vík. Afli frá 1. apríl til 1 júlí tæp 1800 skpd. (2900). Aflafengur því meir en þriðjungi minni en í fyrra, sem að vísu var eitt- hvert mesta aflaár sem þar hefir komið, og mun teljast i tæpu meðallagi. Bátar voru flestir hættir fiskveiðum um og fyrir miðjan júni, og nokkrir í byrj- un júní. Hnífsdalur. Þaðan gengu í vor 1 vélb. ca. 20 lesta, 8 vélbátar undir 12 lestum, 10 smávélbátar og um 15 árabátar (þar af nokkrir úr Arnardal). Ekki gengu allir þessir bátar að staðaldri yfir vorið, og flestir smávélbátanna og árabátanna hættu siðari hluta maímán. Afli frá 1. apríl til 1. júlí um 1460 skpd. (2350). Bátatala í Hnífsdal s. 1. vor var: 2 vélb. milli 20 og 30 lestir, 11 vél- bátar undir 12 lestum og um 20 opnir bátar, nokkrir með smávél. Aflinn á vor- vertíðinni í ár má teljast með rýrasta lagi, og enda lélegri en i Bolungavik. ísafjarðarkaupstaður. Fiskveiðaskip, sem iögðu þar upp afla í vor, voru sem bér segir: 10 vélbátar yfir 12 lestir, 5 vélb. undir 12 lestum og 8 smávélbátar, svo og togararnir Hávarður og Hafstein. Nokkur utanbæjarskip seldu og hér afla- slatta, auk þessara. 1 fyrra gengu frá ísaf. 6 vélskip ca. 30 1. og 9 smærri vélbátar, auk togaranna tveggia. Afli á vorvertíðinni í ár er talinn 6665 skpd. (7700). Þar af togaraafli um 1800 skpd. en í fyrra um 3500 skpd. Aflafengurinn á vorvertíðinni má telj- ast í meðallagi.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.