Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1929, Page 25

Ægir - 01.09.1929, Page 25
ÆGIR 201 kilo. Skata er seld á líkan hátt og lúða. — Alt er vigtað i Hull, nema lúða og skata. 1 Grímsby er aðferð önnur; þar er ekkert vegið; alt er þar mælt. T. d. allur d5rrari fiskur er mældur í kössum (box), hitt lagt fram í scores = 20 stykki, en þó hver tegund út af fyrir sig. Uppboðið byrjar kl. 9 f. h. og ervana- lega búið að selja alt kl. um 11 f. h. — Uppboðshaldari hefur aðra aðferð, en hér tíðkast. Hann byrjar heldur hærra, en nokkur von er um að fá fyrir fiskinn, t. d. í kit af þorski 50 shillings; þegi menn, nefnir hann 49 sh., og svo niður á við þar til einhver gefur sig fram og segist kaupa fyrir það verð. Sá sami getur þá fengið eins mörg kit af þeirri tegund, sem boðin var upp, fyrir það verð, sem hann bauð. Hafi engin gripið fram i er uppboðs- haldari lækkaði boðin, og honum þykir nóg farið niður á við með verðið, getur hann stöðvað uppboðið, en venjan er sú, að alt er selt fyrir fáanlegt verð. Tilkynning frá Stjórnarráðinu. Samkvæmt fregn frá danska utanrfkis- málaréðuneytinu hefir tollnefnd öldunga- deildar þingsins í Bandaríkjunum lagt til, að aðflutningsgjaldið á þorsk og isu, þurk- aðri og ósaltaðri, skuli lækkað frá 21/*—• U/2 cts. pr. lb. og á nýjum, frosnum fiski, — að undanskildu heilagfiski, laks, mak- ríl og sverðfiski — frá 1—Vs ct. pr. lb. Þess ber þó jafnframt að geta, að mjög cr enn óvíst, hvort tillögur þessar munu ná endanlegu samþykki þingsins. Slysfarir. Aðfaranótt laugardags 14. september, drukknuðu þrír menn, við svonefnda Elíasarbryggju í Reykjavík. Um kl. 2 um nóttina varð slyssins vart; var þegar hafin leit og fyrir birt- ingu voru öll líkin fundin. Þeir sem druknuðu, voru þessir: Guðmunaur Jónsson verkstjóri, Ficher- sundi 1. Sigurbjörn Jónasson formaður, Báru- götu 23. Jóhannes Björnsson frá Litla-Velli. Allir voru menn þeir, er þarna drukkn- uðu, flestum Reykvikingum kunnir. Allir voru kvæntir menn á besta aldri. Guð- mundur Jónsson verkstjóri var borinn og barnfæddur Reykvíkingur. Hann læt- ur eftir sig konu og níu börn. Auk þess var gömul móðir hans á heimili hans. Sigurbjörn Jónasson Iætur eftir sig konu og 3 börn. Hann hafði og fyrir öldruðum tengdaforeldrum sínum að sjá. Jóhannes Björnsson frá Litla-Velli var maður barnlaus. Enginn veit hvernig slys þetta vildi til og rannsókn lögreglunnar hefir eigi varpað neinu ljósi yfir það. Úrgangur úr þorskalifur. Mikið hefir verið unnið að á Newfound- landi að pressa lýsi úr grút og er undra- vert, hve mikið af því hefir náðst á þann hátt. Lýsi það, sem fram er leitt þannig, hefir reynst ágætt í skepnufóður og ali- fuglafæðu. Grúturinn er þurkaður og síðan mal- aður; hafa búnaðarálastofnanir látið gera ýmsar tilraunir með fóðurefni þetta og ber saman um, að það sé hið albesta, sem fram hefir verið leitt. Sérstaklega fyrir alifugla.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.