Ægir - 01.09.1929, Blaðsíða 26
202
ÆGIR
-Síldveiði á öllu landinu.
31. ágúst 1929. tunnur Kryddað tunnur í hræöslu tunnur
Vestfirðir1) 3.665 209.144
Siglufjörður 65.057 15.688 155.440
Eyjafj, Raufarh. . 30.838 732 151.350
Austfirðir 8.386 » »
Samt. 31. ág. 1929 107.946 16.420 515.931
Samt. 1. sept. 1928 90 852 28.648 448.597
Samt. 3. sept. 1927 169.618 56.626 545.000
1) 1002 tn. smásíld meðtalin.
Lokaskýrsla
um síldveiðina 1929.
Vestfirðir') Siglufjörður Eyjafj.’) og Raufarh. Austfirðir Saltað tunáur 6.048 65 057 32,086 8.387 Kryddaö tunnur 16.269 732 í bræöslu tunnur 209.144 155.440 151.350
Samtals 1929 111.578 17001 515.934
Samtals 1928 124.157 50.176 507 661
Samtals 1927 180.816 59.181 597.204
1) . Að meðtöldum 3251 tn. millisíld.
2) . » ----- 245 »-----------------
Fiskifélag íslands.
Þorskalýsi og aðrar lýsistegundir.
Framleiðsla þorskalýsis í Newfound-
landi, var alls árið 1928: 3384 smálestir,
virt á 522096 dollara. Meðalalýsi úr
þorskalifur 357028 gallons, virt á 448180
dollara. Selslýsi 2791 smálest, virt á
331697 dollarar og hvalslýsi 2666 smá-
lestir, virt á 333715 dollara.
Árið 1928 urðu framfarir miklar i lýs-
isiðnaði á Newfoundlandi.
Árangur af áhuga þeim, sem verið
hefir undanfarin ár á því að framleiða
bestu tegundir af meðalalýsi kemur æ
betur í ljós.
Það, sem styrkir mesl trú á iðnaði
þessum, eru endurbætur og aukning á
lýsisverksmiðjum.
Nýtísku bræðslustöðvar eru settar við
aðalveiðistöðvarnar.
ílát undir lýsið eru höfð vönduð og
sterk, svo vissa sé fyrir, að það komi til
ákvörðunarstaðar í besta ásigkomulagi.
Mörgum var veitt leyfi á árinu til þess
að reisa nýjar verksmiðjur.
Prófessorarnir I. C. Drummond frá
University College í London og T. P.
Hilditch frá háskólanum í Liverpool, eru
væntanlegir til Newfoundlands i veríðar-
byrjun og dvelja þar meðan hún stend-
ur yfir, til þess að rannsaka meðferð á
lifur, bræðslu og sendingu og undirbúa
þannig framleiðslu meðalalýsis úr þorsk-
lifur á Englandi.
Fiskimálaráðuneytið hefir haft stranga
umsjón með lýsisverksmiðjum, fram-
leiðslunni og umbúðum áður en lýsið
fer á markaðinn.
Nýkeypt skip.
13. sept. komu til Hafnarfjarðar 2
fiskigufuskip, sem Bjarni skipstjóri ólafs-
son á Akranesi hefir keypf í Þýzka-
landi. Skipin heita »August Pieper« og
»Fritz Homann«. Skv. skipaskrá Lloyds
er hið fyrnefnda smiðað 1912 og er 194
br. smál. að stærð, en hið síðarnefnda
smíðað 1910 og 189 br. smál. Bæði skip-
in eru smíðuð á skipastöð G. Seebecks
í Wesermúnde.
17. sept. kom til Reykjavíkur gufubát-
urinn »Havörnen«. Bát þennan hefir Jón
í Hlið í Yestmannaeyjum keypt i Noregi,
og er hann smiðaður 1910 og er talinn
71 br. smál. að stærð.
Þá hefir verið keyptur gufubátur til
Bolungarvíkur, »Ölver« að nafni, er það
tréskip, keypt frá Noregi.