Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1929, Side 7

Ægir - 01.11.1929, Side 7
ÆtílR 255 Seinustu æfiár sín var hann að semja æfisögu sína og hafi honum enst að ljúka við hana, er það stórkostlega merkilegt rit og um leið saga íslands um 80 ara skeið, því að víðast hvar kom Eiríkur prófessor við framkvæmdamál þjóðar- innar um æfina. Fundargerð Fiskifélagsdeilda Austfirðinga- fjórðungs. Ár 1929, miðvikudaginn 6. nóv. var Fjórðungsþing Fiskideilda Austfirðinga- fjórðungs sett í bæjarþingstofunni í Seyðis- fjarðarkaupstað kl. 10 f. h. af forseta, Friðriki Steinssyni. Fessir fulltrúar voru mættir: Fyrir Fáskrúðsfjarðardeild: Marteinn Þorsteinsson, Björgvin Benediktsson. Fyrir Eskifjarðardeild: Friðrik Steins- son, Jón Björnsson. Fyrir Norðfjarðardeild: Níels Ingvars- son, Ölver Guðmundsson. Fyrir Seyðisfjarðardeild: Sveinn Árna- son, Hermann Borsteinsson. Fyrir Fiskideildina »Ægir<r, Pórarins- staðaeyrum: Vilhjálmur Árnason. Fyrir Fiskideildina »Vísir«, Vopnafirði: Björn Ólafsson. Fyrir Fiskideildina á Skálum: Árni Vilhjálmsson. Forseti bauð fulltrúana velkomna. Lagði hann síðan til, að gengið yrði til nefndarkosninga, og að fulltrúum yrði skipað t 3 nefndir, tvær þriggja manna og eina 5 manna nefnd, og féllu kosn- ingar þannig: L Fimm manna nefnd: Jón Björnsson, Björgvin Benediktsson, Árni Vilhjálms- son, ÖlverGuðmundsson, Sveinn Árnason. 2. 3ja manna nefnd: Friðrik Steinsson, Hermann Forsteinsson, Björn Ólafsson. 3. 3ja manna nefnd: Vilhjálmur Árna- son, Níels Ingvarsson, Marteinn Þor- steinsson. Því næst var dagskráin framlögð: 1. Samlög og samvinna sjávarútvegs- manna. 2. Sildarbræðslustöð á Austurlandi. 3. Síldareinkasalan. 4. Beitusild. 5. Vátrygging opinna báta. 6. Lánsstofnun fyrir sjávarútveginn. 7. Strandvarnir og björgunarmál. 8. Markaðsfréttir. 9. Veðurfréttir. 10. Vitamál. 11. Lagabreytingar. 12. Slysatrygging. 13. Samgöngur. 14. Sjóveð. Málunum var því næst skipað i nefnd- irnar þannig: Til fyrstu nefndar (5 manna) var þess- um málum visað: 1. Samlög og samvinna sjávarútvegs- manna. 2. Síldareinkasalan. 3. Lánsstofnun fyrir sjávarútveginn. 4. Markaðsfréttir. 5. Samgöngur. 6. Sjóveð. Til 2arar nefndar var þessum málum visað: 1. Sfldarbræðslustöð á Austurlandi. 2. Beitusild. 3. Vitamál. 4. Lagabreytingar. Til 3ju nefndar var þessum málum visað: 1. Vátrygging opinna vélbáta. 2. Strandvarnir og björgunarmál. 3. Veðurfréttir. 4. Slysatrygging.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.