Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1929, Qupperneq 10

Ægir - 01.11.1929, Qupperneq 10
258 ÆGIR 2. Ennfremur telur Fjórðungsþingið það hagkvæmt, að strandvarnarskipin séu útbúin björgunartækjum og annist björgunarstarfsemi þegar því yrði við komið, og vill vekja athygli Fiski- þingsins á, hvort ekki væri tiltækilegt að breyta »Óðni« í þessu skyni. Tillaga minni hlutans (N. I.): Fjórðungsþingið telur að hagkvæmt sé, að strandvarnarskipin annist björg- unarstörf að svo miklu leyti, sem því verður við komið, jafnframt strandgæzl- unni, en vill um leið vekja athygli Fiski- þingsins á, nauðsyninni fyrir því, að einu skipi verði sérstaklega ætlað að annast strandvarnírnar og björgunarstarfsemi við Austurland. Tillögur meiri hluta bornar upp og var 1. liður samþ. með 9 atkv. gegn 2, en 2, liður var feldur með 6 atkv. gegn 4. Tillaga minni hlutans var samþ. með öllum atkv. 2. Samgöngur. Nefndin lagði fram svo- hljóðandi tillögu: 1. Fjórðungsþingið skorar á sýslunefndir Múlasýslna og bæjarstjórnir Seyðis- fjarðar- og Neskaupstaðar, að vinna rækilega að því, að fengin verði heppi- legur bátur til stöðugra strandferða í Austfirðingafjórðungi, eða á svæðinu milli Raufarhafnar og Hornafjarðar. 2. Ennfremur vill Fjórðungsþingið beina því til áðurnefndra sýslunefnda og bæjarsljórna, að leita samvinnu við sýslunefndir Austur-Skaftafellsýslu og Norður-Pingeyjarsýslu um málið og hrinda því til framkvæmda svo fljótt sem auðið er. 1. liður till. samþ. með öllum atkv., 2. liður samþ. með öllum atkv. gegn 1. 6. fundur 8. nóv, kl. 4 síðd. — Allir fulltrúar bættir. 1. Sildareinkasalan. Nefndin i þessu máli lagði fram svohlj. tillögu: Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingið að hlutast til um við ríkisstjórnina og alþingi: 1. Síldareinkasalan fái aukið fé til um- ráða, svo að hún geti greitt sem mest út á síldina jafnóðum og hún veiðist, helzt sem svarar veiði- og verkunar- kostnaði, og geti séð fyrir nægilegum tunnubirgðum í öllum veiðistöðum landsins. 2. Ennfremur að skorað verði á Einka- söluna, að meðan ekki er bygð síldar- bræðslustöð fyrir Austurland, þá verði Austfirðingum veitt rýmri söltunar- leyfi en hingað til hefir verið, og að Einkasalan geri itarlega tilraun um markaðsleit, sérstaklega fyrir Aust- fjarðasíld, og vill i því sambandi benda á, hvort eigi mundi tiltækilegt, að reyna nýjar verkunaraðferðir. TiII. samþ. með öllum atkv. 2. Beltusild. Nefndin i því máli lagði fram svohljóðandi nefndarálit og tillögu: Gtroiuargerö. Eins og kunnugt er, hefir þorskveiði með lfnu farið mjög í vöxt á síðari ár- um, Þessi veiði hefir gefist all-vel á ýms- um stöðum og má því búast við, að línuútvegur minki ekki í náinni framtíð. Þótt veiðst hafi mjög mikið á sum þau farartæki, er þessa veiði stunda, þá mun hinsvegar oft vera svo, að tekjuafgangur er ekki eins mikill og búast mætti við, þegar litið er á hina miklu veiði. Ut- gjöldin eru það mikil, að undrum sætir. Einn af hæstu útgjaldaliðum við þessa veiði er beitukostnaður. — Það liggja ekki fyrir skýrslur um það, hve mikið er greitt árlega fyrir beitu af öllum is- lenzkum farartækjum, er þessa veiði stunda, en með því að hafa til hliðsjón- ar skipa og bátafjölda á öllu landinu og það, sem vitað er um beitukostnaðinn i

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.