Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1929, Page 11

Ægir - 01.11.1929, Page 11
ÆG I R 2f>9 hinum einstöku veiðistöðvum á hverjum tíma, þá er hægt að gera sér nokkra grein fyrir þvi, hverju þetta muni nema alls. Mun tæpast ofmæit, að þessi útvegs- kostnaður landsmanna nemi hátt á aðra miljón króna eða tveim árlega. Eins og kunnugt er, veiðist mjög mikið af síld hér við land. Um veiðitímann er hún oft verðlítil. Á síðastliðnu sumri var t. d. mikið af nýrri sild selt fyrir 2—3 kr. hver tunna. Miklu af síld var jafnvel mokað i sjóinn aftur, eftir að hún var veidd. Samkvæmt þessu virðist rétt að álykta, að beitusíld hér á landi þyrfti ekki að vera dýr, jafnvel þótt hún sé fryst og geymd nokkuð í frosti. En þetta er nokkuð á annan veg. Hér á landi er beitusíld alt af dýr, stundum slæm og oft ekki nægar birgðir til að fullnægja þörfinni, og hefir eigi ósjaldan verið horfið að því ráði, að fá frosna síld frá öðrum löndum, þegar skortur hefir verið á henni hér. Sama árið og þúsundum tunna afsíld er mokað í sjóinn, er þessi sama vara keypt frosin til beitu á 80 krónur hver tunna. Þetta verða þrautpindar útgerðir að greiða og ekki nóg þar með, heldur er gott úllit á að vér þurfum enn á ný að leita til nágrannaþjóðanna um beitu- síld. Þegar litið er á: 1) aðstöðu vora til að veiða síld, 2) hve mikið veiðist af henni hér við land árlega, 3) hve verð á nýveiddri síld er yfirleitt lágt og 4) hve frosin sild er seld háu verði, þá getum vér eigi dregið aðra ályktun en þá, að hér sé um slæmt búskaparlag að ræða. Þetta verður að lagfæra. Hér er verkefni fyi'ir Fiskifélag Islands. Vér leggjum því til að samþyktar verði eftirfarandi tillögur: Fjórðungsþingið álj'ktar að fela Fiski- félagi íslands að annast um: 1. að rannsakað verði hve mikið er not- að af beitusíld árlega hér á landi. 2. að rannsakað verði og upplýsingar fengnar um tilhögun og skipulag í þessum efnum hjá nágrannaþjóðun- um, t. d. Norðmönnum. 3. að þessu loknu verði gerðar tillögur um skipulag er bætt geti úr því ástandi, er nú ríkir um beitumálin. Ennfremur felur Fjórðungsþingið full- trúum sínum að beita sér fyrir því á Fiskiþingi að hafist verði hand um þessi efni sem allra fyrst. Till. samþ. með öllum atkv. 3. SIysatryg:tíinsar. Nefndin í því máli lagði fram svohljóðandi tillögu: Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingið og stjórn Fiskifélagsins að beita sér fyrir breytingu á slysatryggingarlögunum frá 1925 og 1928 þannig: 1. Allir þeir, er stunda erfiðisvinnu, hvers eðlis sem hún kann að vera og ekki eru trygðir samkvæmt öðrum lögum, skulu slysatryggðir og greiðist gjaldið þannig: a. Tiyggingarskyldur greiðir l/t. b. Atvinnurekandi 7». c. Rikissjóður */«. 2. Tryggingu skal hagað þannig, þegar um skipshöfn er að ræða á skipum, er jafnaðarlega stunda veiði frá landi, að try8gl sé á skipið eftir mannatölu, t. d. 3 menn, 4 menn o. s. frv., án tillits til mannanafna og skal atvinnu- rekandi annast greiðslu iðgjaldanna til sýslumanns eða hreppstjóra, en hafi fullan réit til að taka gjaldið af kaupgjaldi hvers eins að réttum hlut- föllum. Tillögurnar samþ. með öllum atkv. 4. Sjóveð. Nefndin lagði fram svo- hljóðandi dagskrá: Af því að bent hefir verið á ýmsar leiðir til þess, að breyta á heppilegri hátt ákvæðum laga um sjóveð, og af því að nú liggur fyrir eða er þegar byijað á

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.