Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1930, Blaðsíða 4

Ægir - 01.02.1930, Blaðsíða 4
30 ÆGIR Árni Geir Þóroddsson með 7 — Kristján Jónsson — 6 — Á hinum fyrsta fundi, lagði forseti Krist- án Bergsson fram: I. Skýrslu forseta um störf og fram- kvæmdir Fiskifélagsins, árin 1928—29, ásamt reikningum og fjárhagsáællun. II. Blaðið »Ægir« með fjórðungsþinga- skýrslum Vestfirðinga og Sunnlendinga. III. Sérprentun af fjórðungsþingsskýrslum Norðlendinga og Austfirðinga. Stjórnarkosning fór fram hinn 3. febrúar siðd., samkvæmt tillögu frá fulltrúa Jóni Ólafssyni og fór kosning þannig fram: Forseti var kosinn Kr. Bergsson, hlaut 6 atkv., Arngrímur Bjarnason hlaut 2 atkv., 4 seðlar auðir. Varaforseti Arngrimur Bjarnason hlaut 6 atkv., Árni Geir Þóroddsson hlaut 5 atkv. eftir endurteknar kosningar, 1 seðill auður. Meðstjórnendur voru kosnir: Geir Sig- urðsson hlaut 10 alkv., Bjarni Sæmunds- son hlaut 7 alk., í’orsteinn Þorsteinsson hlaut 2 atkv., Árni Geir Fóroddsson 1 og 2 seðlar auðir. Varastjórnendur: Jón Ólafsson kosinn með 9 atkv., Þorsteinn Forsteinsson með hlutkesti eftir endurtekna kosningu um Árna Geir Fóroddsson. Tveggja manna nefnd til álits um hús- byggingarmál félagsins var kosin og urðu fyrir vali: Magnús Sigurðsson, hlaut 6 atkv., Jón Ólafsson, eftir endurtekna kosn- ingu, hlaut 5. atkv., Benedikt Sveinsson hlaut 4 atkv. og Þorsteinn Þorsteinsson hlaut 3 atkv. Undanfarin ár hafa einstöku menn hald- ið því fram á þinginu, að breyta yrði lögum félagsins og kom hið sama fram á þessu Fiskiþingi, og var því kosin Milliþinganefnd í þessu máli og samþ. að í henni væru 3 menn, þessir hlutukosningu: Arngrímur Bjarnason hlaut 9 atkv. Hermann Forsteinsson — 7 — Geir Sigurðsson — 6 — ffingskýrsluna er nú verið að prenta og er þar skýrt frá málum þeim, sem fyrir Fiskiþinginu láu og afdrifum þeirra þar. Verður skýrslunni útbýtt til æfifélaga og deilda, hið fyrsta eins og undanfarin ár. Fiskiþingið stóð yfir í 18 daga. Stjórnarráðs- tilkynning. Reyykjavík, 30. des. 1930. Með skírskotun til bréfs ráðuneytisins dags. 26. mars þ. á. snertandi verðlagið á þorskhrognum til notkunar við sardínu- veiðar við Marokkóstrendur tilkynnist hér með, að samkvæmt skýrslu frá danska konsúlatinu i Casablanca til utanríkismálaráðuneytisins í Kaupm.- höfn er verðið á þorskhrognum seni stendur nálægt 450 frankar fyrir tunn- una, 130 kg. netto, afhent í Casablanca, að meðreiknuðum verðtolli 12Vs pct. Jafnframt er skýrt frá, að verzlunar- húsið Harald Stornes & Co. — þar í borg, óski eftir tilboðum héðan um sölu á þorskhrognum. Til Fiskifélags íslands, Reykjavik.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.