Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1930, Blaðsíða 25

Ægir - 01.02.1930, Blaðsíða 25
ÆGIR 51 Bergmáls-dýptarmælir. Mönnum hefir fyrir löngu dottið i hug að nota úthreiðslu iiraða og endurkast ldjóðsins til þess að mæla sjávardýpið, á sama hátt og mæla má fjarlægð frá hjörgum með þvi að skjóta eða blása í flautuna og atlmga, hve lengi hljóðið er að fara fram og aftur milli skips og hjargs. Fyrir nokkurum árum tókst Þjóð- verjum að gera mæli af þessu tæi, all- margbrotið áhald, er þeir nefndu Echo- lotapparat (bergmáls-dýptarmæli), þar sem hljóðbylgjur eru sendar frá plötu öðrum megin á skipsbotninum niður í sjóinn og kastast aftur frá botninum upp að skipinu og lenda þar á móttöku- plötu, hinum megin við kjölinn. Með ýmsum raforku-útbúnaði berst svo hljóðið upp í móttöku áhald á brúnni, þar sem skipstjóri eða stýrimenn geta hlustað tímaun frá sendingu til móttöku og af því reiknað dýpið út, eða beinlín- is lesið dýpið á hverri mínútu á þar til gerða tcflu, eins og þegar loftþrýstingur er lesinn á sjálfritandi loftvog (haró- graf). Sparar þetta allt mikinn tíma og umstang, ef oft þarf að stika dýpið og evkur öryggi skipsins mikið á varasöm- uni leiðum. Bergmáls-dýptarmælir frá Atlaswerke i Bremen var settur í þýzka rannsókna- skipið „Meteor“, þegar það fór i eina uiildu Suður-Isliafsför 1925—1926 og 1-eyndist liann ágætlega. — Danska i’annsóknarskipið „Dana“ fékk einn (frá sama firma) áður en hún fór i sinn langa leiðangur umhverfis jörð- ma og er látið mjög vel af honum. —- t) Hefir umboðsmann fyrir ísland: Geir H. ^ega, kaupinann, í Reykjavik. — liefur fengið hann líka og reyndi „Hvidbjörnen", danska varðskipið nýja hann hér i naust við Vestmanneyjar með góðum árangri. Þessir mælar, sem einkum eru ætlaðir til vísindalegra dýptarmælinga, eru mjög dýrir (kosta tugi þúsunda), en nú eru Bretar farnir að smíða ódýrari mæla af líkri gerð (Echo-Sounders) handa lier-, farþega- og' flutningaskip- um og jafnvel lianda togurum (einn enskur togari hefur reynt einn á íslands- ferð, og lætur vel jrfir honum) og liafa nú fjöldamörg skip mælinn. Verður liaim væntanlega brátt algengur, því að nákvæmnin i mælingunni er furðu mik- il, 1 fet eða jafnvel minna á 3—4 og nið- ur að 15—20 föðmum og lik er útkom- an þó að dýpið nemi hundruðum faðma. Sá er galli á, að þessir mælar eru æði- dýrir, þótt þeir séu sag'ðir „ódýrari“ hér að ofan. Firmað Henrjr Hughes & Son í London,1) sem smíðar þá og önnur mælingartæki fyrir flotamálastjórnina brezku býður þá fyrir 275—425 pd. st. handa togurum og flutningaskipum, fyr- ir utan ísetningu í skipið, sem kostar víst töluvert. B. Sæm. Fiskideildir nýstofnaðar. Fiskideild í Vopnafirði, »Vísir«. — á Skálum á Langanesi, — á Tálknafirði, »Hvöt«. Þessar deildir allar ern stofnaðar haust- ið 1929.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.