Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1930, Blaðsíða 21

Ægir - 01.02.1930, Blaðsíða 21
ÆGIR 47 — Reyndar eiga þau bæði heimiiisfang á Eskiflrði, og geta lesendur bætt þeim við og skipverjatölu þeirra, sem mun vera samtals á báðum 44 skipverjar. Eins og skýrslan ber með sér, þá hefir komið á land 30857 skpd. af fiski á Aust- urlandi á þessu ári, talið í þurri fiskvigt. Þetta mun ekki of talið, því reynslan befir sýnt, að skýrslur okkar erindrekanna eru of lágar, þetta frá 7 — 10°/o. Þessi afli ætti því að vera að verðmæti, reiknað með verði fyrir fisk frílt í skip, að minsta kosti 23/t milljón krónur, og sé með talið lýsi og bein (hausar og hryggir), sem komið bafa ur þessum afla, þá mun óhætt að telja verðmæti aflans 3 milljónir króna. Þetta ár rnun ekki geta talist meðalár hér, þegar á alt er litið, en út í það atriði ætla ég ekki að fara nú. Skýrslurnar tala fyrir sér um það, það sem þær ná. En ýmsa agnúa, stóra og smáa á fyrir- komulagi útgerðarinnar, hafa útvegsmenn sérstaklega komið auga á á þessu ári, sem vonandi verður reynt að lagfæra, og væri óskandi að komandi Fiskiþing og Fiskifélagsstjórn gerði alt sitt til að lag- færa slíkt. Seyðisfirði 31. des. 1929. Hermann Porsteinsson. Leiðrétting. í 11. tbl. »Ægis<n 1929, er á bls. 234 getið þeirra 11 manna, sem fórust á »Giss- uri hvíta« og er þar eins og í fleiri blöð- um, rangt skýrt frá nafni 6. manns í röð- inni, Sigurðar Jónssonar frá Aðalvík, sem fór á land í Aðalvík, og varð þar eftir, en nafn Guðmundar G. Guðmundssonar frá Álftafirði, hefir fallið úr. Hann fórst ®eð skipinu. r Attræðisafmæli. Ámundi Ámundason er fæddur 10. febr. 1850 á Sandlæk i Eystrihrepp og voru foreldrar hans Ámundi Guðmundsson frá Syðra-Langholti og Guðríður Guðmunds- Anumdi Amundason, dóttir frá Sandlæk, og bjuggu þau allan sinn búskap á eignarjörð sinni, Sandlæk, og eignuðust 8 börn, er öll komust til fullorðins ára. Er mikil ætt út af þeim komin og margt af því fólki hér í bænum. Um tvítugs aldur fór Ámundi til sjó- róðra og réðist hann þá á útveg Jóns Þórðarsonar í Hlíðarhúsum, og var á hans útveg allar vertíðir, en heima við heyvinnu hjá foreldrum sínum á sumrin. 1876 flutti Ámundi alfarinn til Reykja- víkur og giftist nokkru sfðar Jódísi dóttur Jóns Þórðarsonar, hinni mestu ágætiskonu,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.