Ægir - 01.02.1930, Page 26
52
ÆGIR
Mánaðarritið „Ægir“.
Eins og sést á skýrslu Fiskifélagsins,
sem brátt verður send æfifélögum og deild-
um, eru útistandandi skuldir »Ægis« tald-
ar kr. 6000 um áramót 1929 — 1930. Þessar
skuldir eru framkomnar á 16 árum, að
nokkru fyrir auglýsingar, en mest ])ó hjá
kaupendum úti á landi. Um 800 eintök
að meðaltali hafa verið send út um land,
og of víða kemur það fyrir, að allir greiða
hvern árgang með 3 krónum, hvort sem
þeir eru í fiskideild eða ekki og hefir það
þó verið margítrekað, að utanfélagsmenn
greiddu ritið með krónum fimm, hvern
árgang. Mun láta nærri, að tapist þannig
árlega um 240 krónur. Svo og svo mörg
eintök eru pöntuð, en við greiðslu er þess
getið, að eigi seljist eða hafi selst nema
nokkur hluti hins senda, en hið óselda er
sjaldan endursent.
í byrjun var svo fyrirskipað, að fiski-
deildum væri sent ritið og ætlast til að
formenn eða gjaldkerar útbýttu því og
innheimtu, oft hefir það borið við, er
þessir menn, annaðhvort hafa skrifað eða
komið sjálfir með greiðslu, að þeir hafa
látið þess getið, að þeir greiddu úr eigin
vasa, væru ekki búnir að ná inn gjaldi
o. s. frv.
Vegna þess hve útistandandi skuldir eru
orðnar miklar, var á nýafstöðnu Fiski-
þingi ákveðið að skora á þá, sem ekki
greiða »Ægir« ár eftir ár að gera skil fyrir
1. júli þ. á., þangað til verður ritið sent
þeim, en ekki lengur, nema um semjist.
Frá byrjun var greiðsludagur »Ægis«
ákveðinn 1. júlí, en á síðari árum hefir
eigi veriö auðið að miða greiðslu við þann
dag, en æskilegt væri, að greiðsla fram-
vegis kæmi fyrir 1. desember hvert ár,
sökum reikninga félagsins, sem verður að
loka 31. desembar, er þeir að réltu lagi
eiga að vera til fyrir aðalfund, sem hald-
inn er að öllu jöfnu um miðjan janúar.
Öllum þeim mörgu, sem styrkt hafa
ritið með skilvísi og auglýsingum er hér með
þakkað og vonandi kemst lag á innheimtu
hjá þeim útsölumönnum, sem við mesta
örðugleika eiga að stríða — við inn-
heiintu og þeir einstakir menn, sem ritið
panta, verða að muna það, að það er
ekki sent ókeypis. Oft hefir verið skrifað
til manna með misjöfnum árangri.
Fiskiþingið síðasta hefir nú samþykkt,
að sama verð sé á »Ægi« fyrir alla — 3 —
þrjár krónur, en þess ber að geta, að sú
breyting verður ekki fyr en árið 1931 og
er því hið sama verð á ritinu þetta ár
eins og að undanförnu, 5 kr. og 3 krónur.
F. h. Fiskifélags íslands,
Sveinbjörn Egilson
ritstjóri »Ægis«.
Aflaverðlaun.
Til þessa, (1. mars), hafa aflaverðlaun á
yfirstandandi vertið verið þessi, samkvæmt
ákvörðun verðlagsnefndar línugufuskipa-
eigenda og sjómanna.
Stórfiskur 0,40 hvert kg.
Smáfiskur 0,35 hvert kg.
Lýsi 77x/a hvert kg.
Samkvæmt þessu ber að reikna afla-
verðlaun á línugufuskipum frá 16.—25.
febrúar að báðum dögum meðlöldum svo
sem hér segir:
Af stórfiski kr. 6,81 af smálest.
Af smáfiski kr. 5,25 af smálest.
Af lýsi kr. 1,29 af hverjum 105 kg.
_____________________________________(FB)
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.