Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1930, Blaðsíða 3

Ægir - 01.03.1930, Blaðsíða 3
ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS. Pieykjavík, — Mars 1930. Nr. 3. Björn Sigurðsson fyrv. bankastjóri. Minningarorð. Björn Sigurðsson fyrv. bankastjóri var iæddur 29. október 1856 að Þverá í Hall- ardal. I’oreldrar lians voru Sigurður Finn- ^ogason og Elísabet Björnsdóttir. Ólst * jorn upp lijá ömmu sinni, Siguriaugu innsdóttur frá Syðri-Ey, er dvaldi hjá jongdasyni sinum, Árna Jónssyni á Þverá, nnuni merkasta bónda. Fékk Björn þar 'ið bezta uppeldi. Árni kom honum 16 ára gömlum til Jakobs Holm verzlunarstjóra í Hólanesi sem verzlunarlærling. (Kona J. Holm var skáldkonan Thorfhildur Þ. Holm). — Verzlunina á Hólanesi átti þá Fr. Hillebrandt stórkaupmaður i Kaup- mannahöfn, og aðra á Blönduósi. Við þessar verslanir starfaði Björn til skiftis og síðan hjá verslun Jolian Georg Möllers á Blönduósi. En vorið 1879 réðst hann til Eskifjarðar og tók þar við forstöðu versl- unar Jóns kaupmanns Magnússonar og gegndi þar jafnframt póstafgreiðslu — var fvrsti póstafgreiðslumaður á Eski- firði. í október 1882 sigldi Björn til Kaup- mannahafnar og kyntist þá Tryggva Gunnarssyni á leiðinni. Varð það til þess, að hann réðst til Gránufélagsins, var á skiifstofu félagsins í Höfn á vetrum, en i lausakaupaferðum á sumrin. Gegndi liann því starfi í þrjú ár. Næsta ár rak hann umboðsverslun fyrir eigin reikning, en 1887 ætlaði liann að ganga í verslunarfélag við Jón Guðmunds- son í Flatey. En Jón dó þá um það leyti, svo að ekkert varð úr félagsskapnum. Björn tók þá við versluninni í Flatey og rak liana í allmörg ár og stofnsetti þá líka fyrstur verslunarstaði i Skarðsstöð og Búðardal, og keypti Ólafsvíkurverslun hina gömlu. Frá árinu 1903 rak B’jörn umboðs- og heildsöluverslun í Kaupmannahöfn, en 1910 var hann skipaður bankastjóri Landsbankans og gegndi því starfi þangað til 1916. Þá um sumarið var hann sendur

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.