Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1930, Blaðsíða 18

Ægir - 01.03.1930, Blaðsíða 18
68 ÆGIR Umbrot á sjávarbotni. Hafa jarðskjálftar eyðilagt hinar frægu tiskislóðir á Newfoundlands grunninu — Grand Bank? Fiskveiðar liafa verið stnndaðar á þess- um fiskislóðum í tvö hundruð ár og hafa þær verið liinar mestu auðsuppsprettur Vesturheims og þangað sótt auðæfi frá öðrum löndum. Nú eru menn hræddir um, að í jarðskjálftum þeim, sem á þessu svæði voru í desember 1929, liafi sjávar- botninn raskast svo, að eigi verði lengur nm veiðar að ræða á stórum svæðum, þar sem áður voru hin ágætu fiskimið. Skýrslur frá símalagningaskipiun, sem um jólin voru send til að gjöra við shna- þræði, sem slitnað höfðu i jarðskjálftun- um segja frá, að sjávarhotninn hafi sigið svo, að líkindi séu til, að á þessu svæði verði fiskiveiðar eigi stundaðar framar. Þar sem dýpi, fyrir jarðskjálftann var 600 fet liafa eftir liann verið mæld 15000 fet til hotns. Öllum skipshöfnum á skip- um þeim sem send voru til þess að gjöra við shnaþræðina I^er sainan um, að svo virðist sem hotninn á sunium stöðum hafi sigið niður á óþekkt dýpi og símaþræðir horfið. Þessar fergnir eru frá Glace Bay, Nova Scotia dags. 28. des. 1929. í bréfi til Stjórnarráðsins leiðréttir að- alræðismaðurinn í Montreal þessar fregn- ir og er bréf lians dagsett 6. fehrúar þ. á. Segir svo i því: Eftir fregnum þeim, sem horist Iiafa frá ræðismanninum í St. Jolnis á Newfound- landi, virðist svo, sem skýrslur þær, um sig botnsins á Newfoundlands grunninu, séu orðum auknar. Það er sannað, að jarð- rask hefur talsvert orðið á botni sunnan- vert á grunninu, en áhrif á veiðar virðist það ekki hafa haft. Ræðismaðurinn getur þess, að í desem- ber, eftir jarðarumbrotin, hafi frakknesk botnvörpuskip kom til St. Johns með full- iermi af fiski, sem þaðan var sendur til Frakklands og hafi þeir engra breytinga orðið varir, hvað veiðar snerti. Sömuleiðir hefur verið gjört við hina slitnu sima- þræði og var þvi lokið á tiltölulega skömmum tíma. Verðlagsnefnd línuveiðaeigenda og sjómanna hefir ákveðið verðlag þannig: Af stórfiski hvert kg 32 aura. Af smáfiski hvert kg. 31 eyrir. Af lýsi livert kg 83 aura. Verðið gildir frá 27. mars kl. 12 að kvöldi til 6. april kl. 12 að kvöldi. Aflaverðlaun háseta verða því samkv. framangreindu verði: Af smálest stórfiskjar kr. 6.00. Af smálest smáfiskj- ar kr. 4.65. Af hverjum 105 kg. lýsis kr. 1.38. Sænska frystihúsið hefir undanfarna daga tekið 30—55 tonn af fiski á dag til frystingar. — Fyrsti farmurinn af fiski fer héðan vik- una sem hyrjar 30. mars. Skipsstrand. Hinn 26. mars kl. 10 e. li. fórst skonn- ortan „Ernestine“ frá Klaksvik i Færeyj- uin og drukkna 8 menn. Hríðarveður var og strandaði skipið nálægt Selvogi. Alls voru 26 menn á skipinu, sem nýkeypt var frá Frakklandi og var 194 br. smálestir að stærð. Einn skipverja dó er á land var komið og eru þvi 9, sem farist hafa. Skipverjar, sem eftir lifa komu lil Reykjavíkur 30. mars að kveldi. Þau 3 lík, sem á land liafa rekið og lík þess, er dó i fjörunni verða flutt til Færeyja með fyrstu ferð. Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson. Ríkisprentsrniðjan Gutenberg.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.