Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1930, Blaðsíða 11

Ægir - 01.03.1930, Blaðsíða 11
ÆGIR 61 og gjörist máske ekki þörf, en „Ægir“ vill nú minna á þetta atriði og fetar þar í spor þeirra blaða, sem á sínum tíma hvöttu bæjarbúa til að hafa málað og skreytt hús sín fyrir komu gestann í júní næstkom- andi. Reykjavík 20. mars 1930. Sveinbjörn Egilson. Sjðrinn og rafkveikjuvélarnar. Vel er það farið, hversu sterk breyfing er vöknuð til þess að reyna að afstýra slvs- uni á sjó. Og er það síst að lá, þótt tilfinn- anlegur sé kostnaðurinn, hversu vel að revnt er frá hendi löggjafanna, að ákveða Um útbúnað allan á skipum og bátum. En þar fer sem oftar, að lög þau vcrða oft ærið mikið pappírsgagn. Fer svo um öll Þau lög og lagasetningar, sem ekki eru brend i huga manna af eigin hvötum eða °igin framtakssemi, sem kom í ljós af því, að viðkomendur sjái og viðurkenni þörf- ma fyrir tilveru laganna. hað virðist heilbrigð hugsun, að sjó- mennirnir sjálfir viti best hvað þarf að Vera, í þessu efni, og ekki ])arf. Og þó er sv° í rauninni, að virst hefir nauðsynlegt að löggjöfin tæki hér í taumana og fvrir- •^kipaði ýmislegt með lögum. Þessi lög um utl)únað og fleira á skipum og bátum urðu þvi, og eru, í eðli sínu þvingunarlög, sem var og er tekið með hangandi liendi. Enda eru skoðanir og útl)únaður afar misjafnt íramkvæmt á ýmsum stöðum, og eykur það á óvinsældina. Einn sleppur með svo iangtum — langtum minni koslnað en annar. Þessa eru mörg dæmi. Og það virð- !st liart, að sjómennirnir, sem sjálfir eiga að nota skip og áliöld öll og eiga að reiða líf sitt og annara á það, sem þeir vilja hafa — eða sýnist nóg að bafa — svona eða svona, skuli engu mega um ráða, hvað sem það kostar, sem til þarf að bæta. — Enda fer oft svo, að Jögum þessum og fyr- irskipunum er ekki blýtt — nema með augnaþjónustu. Til þess að tala ekki alveg út í bláinn, skal ég taka sönn dæmi: For- manni báts er skipað, af skoðunarmönn- um, að hafa með: rekakkeri, bárufleyg, slökkviáhald eða i þess stað 2 góðar blikk- fötur (opnir bátar) o. fl., o. fl. Jú, hann hefir það með út í verið — en eftir þann dag, sem hann notaði til að flytja sig í verið, kemur þetta ekki í bátinn. Hann íform.) lagði þetta strax „upp á malir“ og svo gat það „átt sig“. En hvernig stendur á þessu? Er óvildin yfir því „að vera skipað“ þetta sterkari skyldutilfinningunni um að vernda líf sitt og þeirra, sem ráðnir hafa verið með á bátinn? Eg geri ekki ráð fyrir því — að minsta kosti ekki eftir að fyrsta reiðikast- ið er úti, yfir landkröbbunum, sem „skip- uðu“ þetta — heldur muni liér að eins um að kenna hugsunarleysi — vöntun á því, sem hverjum formanni ber skylda til að sýna gagnvart sjálfum honum og þeim, sem á landi eru og unna honum, og gagn- vart þeim, sem bann hefir fengið með sér — vöntun á aðgætni. Og því er miður. Þegar það nú er athugað, að jafnvel ekki lagaþvingun nægir til þess, að eins varlega sé farið og hægt væri — enda þó að enginn megi sköpuni renna — þar eð það er svo, að ekki er nægileg varúð brend inn í hugi manna af göfugri hvöt skyldunnar, þá er líklega langt í land að sú bug'mynd rætist, er allir þeir, er lagt hafa sig fram í orði og verki til slysavarna gera sér um þverrandi eða þorrin slys á sjó. Enda er þetta meira hugsjón. En hug- sjónirnar sigra á stundum. Eg gat ekki látið hjá líða að minnast hér

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.