Ægir - 01.03.1930, Side 4
54
ÆGIR
til London sem verslunarerindreki ís-
lands. Yar hann þar þangað til um sumar-
ið 1920. Kom þá heim og tók við banka-
stjórastörfum, en sagði þeim af sér 1. okt.
um haustið. Síðan gegndi hann hér
ýmsum trúnaðarstörfum, um tveggja ára
skeið, en þá var líkamsheilsa lians á þrot-
um eftir langan og strangan erfiðisdag.
Sigldi hann þá til Kaupmannahafnar að
leita sér hvíldar og dvaldi þar þangað til
sumarið 1925. Kom hann þá heim aftur
larinn að heilsu og kröftum og dvaldi liér
i Reykjavík síðan. — Hann andaðist 22.
janúar 1930.
Þess má geta, að meðan Björn rak versl-
un, var þvi viðbrugðið hvað liann var lip-
ur og áreiðanlegur. Hann lét sér mjög anf
um að koma á vöruvöndun og jafnrétti i
verslunarsökum milli fátækra og ríkra, að
ijirgja verslanir sínar vel að nauðsynja-
vörum, en um óhófsvörur lét liann sér litt
gefið og varð fyrstur íslenskra kaup-
manna til þess að hætta að versla með á-
fengi. Var þó sú verslun talin arðvænleg-
ust á þeim dögum. Hann átti og góðan
þátt í því að danska stjórnin gerði samn-
inga við Spánverja um sölu á fiski og varð
það íslendingum til stórhagnaðar, eins og
kunnugt er. — Mörgum trúnaðarstörfum
gegndi liann um æfina, öðrum en þeim,
sem hér eru talin, átti t. d. sæti i Verð-
lagsnefnd og í Yerslunarráði Islands.
Björn Sigurðsson var tvígiftur. Fyrri
kona lians Guðrún dóttir Jóns Guðmunds-
sonar kaupmanns i Flatey. — Seinni kona
lians Cliristine M. Jaeobsen, dótturdóttir
Fr. Svendsen kaupmanns í Önundarfirði.
Þrjú uppkomin hörn Björns eru liér í
hænum: Sigurður B. Sigurðsson kaup-
maður, Ingibjörg bankaritari og Guðrún,
nemandi i Mentaskólanum.
„Standard skip“.
A síðasta Fiskiþingi var eftirfarandi til-
laga borin upp og samþvkt:
„Fiskiþingið skorar á stjórn Fiskifé-
lagsins að hlutast til um, að fengnir verði
samræmdir (standard) uppdrættir að
skipum og bátum frá lielstu skipasmíða-
stöðvum á Norðurlöndum, og öðrum
þeim skipasmíðastöðvum, sem kunnar eru
að því, að smíða góð og nothæf skip, á-
samt uppkasti að byggingasamningi skipa
og útboðslýsingu.
Plögg þessi liggi til sýnis á skrifstofu
Fiskifélagsins i Reykjavík, og ennfremur
hjá fjórðungserindrekunum".
Fiskiþingið, 27. janúar 1930.
Kristján Jónsson. N. Ingvarsson.
Geir Sigurðsson.
I.
Þetta er orð, sem komst inn á síðasta
Fiskiþing og gat eins vel lieitið „Normal-
skip“ eða „Munsturskip“, sem mun líkast
íslensku, þar cð Sigfús Blöndal liefur orð-
ið „munstur" og ekki annað að sjá en, að
hann taki það sem gott og' gilt.
IJvernig orð þetta er hingað komið er
liægt að rekja, en verra viðureignar er
það eða verður, þegar menn fara að spyrj-
ast fyrir á skrifstofu Fiskifélagsins hvað
sé hér meint, því skýringu var ekki auðið
að fá hjá þeim, sem fluttu það inn á þing-
ið og verður þá ógreitt um svör hjá þeim,
sem ekki vita hvað meint er, og afleitt á
skrifstofu Fiskifélagsins að geta ekki leyst
úr spurningum, sem áhræra skip og' báta.
Mundi það þykja snubbótt frammistaða i
Búnaðarfélaginu, ef bændur, sem þangað
leituðu ráða eða upplýsinga, gætu ekki
fengið þau svör, sem þeir eiga heimtingu
I