Ægir - 01.08.1930, Qupperneq 4
170
Æ G I R
Sigurður Pétursson
skipstjóri á »Gullfoss« 50 ára
12. ágúst 1930.
Fyrsta viðkynning Sigurðar Péturssonar
frá Hrólfsskála á Seltjarnarnesi, af sjón-
um, var sú, að hann réri með föður
sínum vertíðina 1894 og var þá legið við
suður í Leiru.
Næstu vertíð var hann á galeas »Hjálm-
ar«, sem faðir hans og fleiri áttu. Hét
það skip áður »Marie Funder«, var keypt
í Danmörku 1892 og var hér fyrstur eig-
andi Jón Bentsson frá Flatey. Bað skip
fórst í Faxaflóa í ofsaroki þvi, sem gekk
yfir Suðurland og víðar 12—13. septemb.
1906. Skipstjóri á »Hjálmar« var þá
Runólfur ólafsson og með honum var
Sigurður, þar til hann lét af skipstjórn.
Árið 1899 tók hann hið minna stýri-
mannapróf við Slýrimannaskólann i
Reykjavík og seinna, hið almenna danska
stýrimannapróf í Kaupmannahöfn, sem
veitti réttindi hér, þótt íslenzka prófið
gilti eigi í Danmörku.
Skipstjóraskírteini á íslenzkum skipum
í innanlandssiglingum, öðlaðist hann 1903
og í utanlandssiglingum árið 1906, danskt
stýrimannaskirteini 1910 og danskt skip-
stjóraskirteini 1912.
Á kútterum var hann stýrimaður árin
1902 og 1903 og skipstjóri árin 1904. 1905
og 1906 (»Milly«).
Stýrimaður á Faxafióabátnum »Ingólfi«
var hann árin 1907, ’08 og ’09, síðan á
strandferðaskipinu »Austra« 1910, ’ll og
’12, svo stýrimaður á gamla »Mjölnir«.
Sumarið 1914 stundaði hann »Radió-
nám« í Svendborg í Danmörku og fékk
skírteini sem »Radíótelegrafisti« á »Or-
l(igsværftinu« í Kaupmannahöfn 1914.
Þá var »Gullfoss« í smíðum og fyrir
skipstjóra varð að sjá. Mun þá framkv,-
stjóri E. Nielsen hafa haft augun með
framkomu Sigurðar og litist vel á hana
og manninn. Fór hann þar ekki villur
vegar, frekar en í öðru, og hefir aldrei
þurft að iðra valið á hinum fyrsta skip-
stjóra »Eimskipafélags íslands«.
Hinn 27. marz 1915 var Sigurður lög-
skráður skipstjóri skipsins í Kaupm.höfn
og hefir siðan fylgt þeim fjölum, landi
og sér til stórsóma. Hefir hann þessi 15
ár fyllifega sannað, að hann er hinn rétti
maður á réttum stað.
Á stríðsárunum fór hann með »Gull-
foss« 18 ferðir til Ameríku (New-York).
Voru þær sjóferðir hinar ægilegustu.
sökum kafbáta, sprengiduíla og íss, þótt
úr minni manna séu liðnar nú.
Alls hefir »Gullfoss« undir stjórn Sig-
urðar Péturssonar, farið 156 ferðir milli
landa, að meðtöldum Ameríkuferðunum,
talið til afmælisdagsins 12. ágúst þ. á.
Skipstjóri Sigurður Pétursson er yfir-
lætislaus maður, sem fer sína lifsbraut
án krókaleiða. Hann hefir nú siglt »Gull-
foss« i 15 ár og á þeim tíma aflað sér
virðingu allra þeirra, sem honum hafa
kynst, frá þeim æðst setta til hins lægsta
og vel hefir hann farið með það skip,
sem hér var fagnað hinn 16. apríl 1915
er »Gullfoss« kom til Reykjavíkur í fyrsta
sinn, íslenzk eign með íslenzkri áhöfn.
Trausti því, er honum var sýnt þann
dag, hefir hann aldrei brugðist. Skömmu
eftir að »Gullfoss« hóf ferðir, var þess
getið í erlendum blöðum hve snyrtilega
væri frá öllu gengið á hinu nýja islenzka
skipi. Það var betri auglýsing fyrir ís-
lenzku sjómannastéttina en menn alment
hugsa, og hver, sem getur aflað þeirrar
auglýsingar okkur til handa, vinnur fag-
urt og þarft verk.
Það hefir verið hljótt í blöðunum um
Sigurð Pétursson og ferðir hans og þótt