Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1930, Blaðsíða 17

Ægir - 01.08.1930, Blaðsíða 17
ÆGIR 183 heflr verið til veiða frá íslandi til Bjarnar- eyjar. Sé frá Reykjavik farið fyrir Horn- bjarg er Jan Mayen hér um bil miðja vega til Bjarnareyjar, á réttri stefnu, og vegalengd alls frá| Reykjavik um 2000 km., en leið sú sem héðan mun farin, er austur fyrir land, fram hjá Nordkap á Noregi. Verð á skipum. í skýrslu, sem nær yfir fyrri helming ársins 1930 og birtist í »Fairplay«, er sagt frá, hvað meðal kaupverð á skipum hafi verið hina fyrstu sex mánuði ársins og er þá reiknað eftir því, hve mikið ein smálest af burðarmagni skips kostar. Meðalverð á 7500 smál. gufuskipum var um 9 sterlingspund fyrir hverja smál. Árið 1910 var verðið 6—7 pund, en árið 1915, er afleiðingar styrjaldarinnar fóru að koma í ljós, var verðið 13 pd. hver smál. Eftir það hækkuðu skip í verði jafnt og þétt þar til hámarki var náð 1921, er hver smál. komst upp í 30 pd., en siðari hluta þess árs féll verðið fyrst niður í 18 pd. og var komið ofan í 10 Pd. í árslok; er hér átt við nýsmíðuð skip. Arin 1925-1929 var verð á skipum af sömu stærð, er afhent voru frá brezkum skipasmíðastöðvum, frá 8—8 pd. 19,4 shillings hverja smál. og eru þau því dýrari en næstu ár á undan; orsök til þessarar verðhækkunar er sú, að eig- endur krefjast, að meira sé vandað til herbergja og alls smíðis inni i skipun- Ul», en var fyrir stríð, auk þess sem efni og vinnulaun eru nú dýrari. Hið ódýrasta skip, sem smíðað hefir verið á brezkri skipasmiðastöð, var smíð- ad 1908; var verðið 4 pd. 12,6 shillings fyrir hverja smál., en hið dýrasta skip, sem menn vita til, var smíðað í Japan; kostaði hver smál. í því 100 sterlpd. er smíðastöðin afhenti það. Á stríðsárunum, var eftirspurn eftir 8—9 þús. smál. skipum mest, en nú er stærðin 6500—7500 smál., sem til vöru- flutninga þykir heppilegust. Manna á milli, eru skip af þessari stærð, talsvert ódýrari en hér er getið, þar sem átt er við það verð, sem skipasmiðastöðvar heimta við afhendingu. Fiskútflutningur frá New- foundlandi. Samkvæmt skýrslu frá aðalkonsúl Dana í Montreal, hefir þorskútflutningur frá Newfoundlandi verið þessi frá 1. jan. til 4. júlí í ár, talið í qvintals (1 qvintal = 50,8 kg.). 1929 (Qvintals) 1930 Portugal 80,254 59,320 Spánar 51,932 75,977 Ítalíu 15,748 7,946 Brezku V. Indíur 13,058 14,152 Canada 923 797 Englands 4,027 10,499 Bandaríkjanna . 6,465 1.596 Grikklands.... 1,200 11,104 Porto Rico. . . . 8,451 24,684 Kuba 1,350 2,172 Iamaica 24,122 29,834 Brasilía 143,977 135,318 Malta 25 85 Samtals . . . 351,532 373,484

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.