Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1930, Page 10

Ægir - 01.08.1930, Page 10
176 ÆGIR Guðmundur ísleifsson áttræður. Guðmundur ísleifsson á Stóru-Háeyri varð áttræður á öndverðu þessu merkis- ári. Þess hefir þegar verið minst í blöð- um, en mér finst vel við eiga, að »Ægir» minnist þess einnig. Ég ætla mér þó ekki að rita hér æfisögu Guðm. — Það tel ég mér ofraun, heldur minnast hans ein- göngu í sambandi við útgerð og sjósókn á Eyrarbakka, og þá fyrst og fremst að segja frá breytingunum, sem urðu í þeirri atvinnugrein, við komu Guðm. til Eyrar- bakka, og starf hans þar fyrri hluta æfinnar. Guðmundur fluttist alfarinn hingað til Eyrarbakka á krossmessu vorið 1871- Fór hann þá vinnumaður til þeirra Thor-, grímsensshjóna. Hafði verið hjá þeim 1 tvær vertíðir áður. Hjá Thorgrímssen var hann svo þar til 1873, að hann fluttist til Þorleifs Kolbeinssonar á Stóru-Háeyri, sem síðar varð tengdafaðir hans. Þar byrjaði Guðm. formensku, fyriráeggj- an Þorleifs. Hann hafði róið 4 ver- tíðír áður, 2 frá Eyrarbakka, þegar hann var hjá Thorgrímssen og 2 suður á Miðnesi. Formaður Guðm. á Eyrarbalcka var Jón Jónsson, sem kallaður var sterki, dugnaðarmaður og heppinn formaður. Guðm. mun hafa verið tregur til að takast á hend- ur formenskuna, en lét þó tilleiðast, því Þorleifur sótti það mjög fast. Hann mun hafa verið framsýnn þá, eins og oftar, gamli maðurinn, því Guðm. aflaði vel, strax þessa fyrstu vertíð, þrátt fyrir 5 vikna gæftaleysi, að Þorleifur sagðist aldrei hafa feng- ið jafnmikinn fisk á æfi sinni, og hafði þó oftar haft marga hluti. Guðm. tók við búinu á Háeyri vorið 1874 og byrjaði svo formensku fyrir sjálf- an sig næstu vetrarvertíð, og hélt því svo áfram, að undanskildum nokkrum árum, sem hann fékst við verzlun, þar til vélbátarnir komu og útrýmdu opnu skipunum að mestu. Síðast var hann formaður árið 1915—16. En alt af hefir hann átt einhverri þátt í útgerð, þar til nú fyrir tveimur árum, að hann seldi róðrarskip, sem hann hafði átt lengi og oftast gert út á vertíðinni. Þegar Guðm. byrjaði formensku gengu að eins 4 bátar frá Eyrarbákka. Veiðar- færi voru lóðir. Þá var siður, að hver sjómaður beitti sína lóð heima hjá sér. Aflanum var skift í fjöru og síðan bor- inn upp á bakinu og heim til eigand- anna og þar gert að honum. Það var

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.