Ægir - 01.08.1930, Page 15
ÆGIR
181
Fundið lík Andrée loftfara?
Fréttastofunni hefir borist skeyti um,
að skipverjar á norskn fiskiskipinu »Brat-
vaag« hafi þann 6. ágúst fundið lík
tveggja manna á Viktoríueyju við Franz-
Jósefsland. Voru þau litt sködduð og
mátti sjá, að þau höfðu verið alklædd.
Af bók, er var í vasa annars mannsins,
niátti sjá, að það var lík sænska norð-
urfarans S. Andrée, sem ásamt tveim
löndum sínum. Fránkel og Strindberg,
lagði af stað í loftbelg frá Spitzbergen í
júlí 1897 í þeirri von að komast til norð-
urpólsins, en þeir hurfu í norðurhöfum.
I síðari skeyli til FB. segir: Á dagbókar-
blaði er staða loftbelgsins sögð 83 gr. nl.
br. og 33 austl. 1., og hefir loftbelgurinn
ekki lent á White Island (fyrra skeytinu
Victoria Island). Ætla menn, að leið-
angursmenn hafi lent á ísnum og dregið
ið bútinn á sleða yfir á eyjuna. Byssur
Andrée voru mjög slitnar, og bendir það
bl þess, að þeir hafi notað þær mjög
vetrarmánuðina. Leifar af bjarndýrs-
skrokki hafa fundist nálægt bækistöðinni.
— Likin voru flutt á »Bratvaag« af dr.
Horn, form. norsks vísinda-leiðangurs.
Salomon August Andrée, sænskur verk-
fræðingur var fæþdur 18. október 1851.
Hann var kennari í verkfræði við há-
skólann í Stockhómi. Árin 1882—’83 var
hann við veðurathuganir, ásamt fleirum,
á Spitzbergen og hafði þar vetrarsetu.
Árin 1886—’89 var hann yfirkennari við
»Tekniska Högskolan;« er eftir hann, frá
þeim árum, fjöldi vísindalegra ritgerða.
Árið 1882 fékk hann ríkisstyrk til þess
að nota flugbelgí (Ballon) í þarfir vís-
mdanna, fór sjálfur í þeim og gerði ýms-
ar merkar uppgötvanir og var djarfur
flugmaður. Eftir að hann fann upp að-
ferð til að stýra flugbelgjum með köðl-
um, sem dregnir voru, ásamt seglum,
lagði hann fram áætlun um ferð norður
að heimskanti, þar sem flugbelgur væri
farartækið; var það árið 1895. óskar
konungur annar og A. Nobel, ásamt
fleirum, styrktu fyrirtækið ríkmannlega
og sumarið 1896 fór Andrée til Spitzberg-
en og hafði með sér ágætan flugbelg
(Ballon), sem hann nefndi »Örninn«. Á
»Dansköen« við Spitzbergen reisti hann
hús fyrir belginn og þar var hann fyltur.
slæm veðrátta hamlaði þvi, að lagt yrði
af stað og sneri Andrée heim við svo
búið, en næsta sumar kom hann aftur
til Spilzhergen og hafði í för með sér,
þá K. Frænkel og N. Streindberg og 11.
júlí 1897 lögðu þeir af stað í flugbelgn-
um og har vindur þá í norður, en síðan
hefir ekkert til þeirra spurst, að undan-
teknu þvi, að bréfdúfa kom með boð
frá Andrée. sem hann sendi 13. júlí 1897;
var hann þá staddur á 82° nl. br. Það
er hið siðasta, sem fréttist þar til nú, að
likin finnast.
Leitað var á Grænlandi og Síberiu að
Andrée, eftir að grunur komst á, að slys
hefði orðið, og er ekkert fanst, voru þeir
félagar taldir af á öðru ári eftir burtför.
Síðan eru liðin 33 ár.
Sænska stjórnin hefir ákveðið að senda
fallbyssubátinn »Svensksund« til þess að
sækja lík Andrée og félaga hans og flytja
þau til Sviþjóðar. Adolf Hoel docent hefir
látið í ljós þá skoðun, að alt sem fund-
ist hefir á Hvíteyju og snertir Andrée-
leiðangurinn, ætti að afhendast sænsku
stjórninni. Telur hann hér vera um ein-
hvern hinn merkilegasta fund að ræða,
sem sögur fara af. (Adolf Hoel er norsk-
ur jarðfræðingur, f. 1879, varð 1919 do-
cent í jarðfræði við háskólann, og hefir
tekið þátt í mörgum vísindaleiðangrum
til Spitzbergen).