Ægir - 01.08.1930, Síða 22
188
ÆGIR
Skipastóll heimsins
heíir aukist að »brúttó« smálestatali um
50% síðan 1914, og er nú talinn 68 milj.
Eru að eins talin í þessari tölu skip,
sem eru yfir 100 smál. að stærð. Efst á
blaði er Stóra Bretland og írland með
20,3 milj. smál., þá Bandaríkin með 13,1
milj., Japan með 4,3 milj., Þýzkaland
4.2, Noregur 3,7, Frakkland 3,5, Italia
3.3, Holland 3,1, brezkar nýlendur 2,8,
Sviþjóð 1,6, Grikkland 1,4, Spánn 1,2,
Danmörk 1,1, og önnur ríki til samans
4,4 milj. Skipastóllinn hefir aukist alstað-
ar nema í Þýzkalandi, þar hefir smá-
lestatal verzlunarskipa færst niður um
900 þúsund.
Skiptapi.
Norska síldveiðaskipið »Arizona« frá
Haugasundi, hvolfdi á Húnaflóa út af
Skaga, hinn 4. ág. s. 1. Skip, sem »Fulton«
heitir, sem saltar síld utan landhelgi,
bjargaði skipsmönnum.
í símskeyti til eigenda skipsins segir
skipstjóri svo: »011 skipshöfnin fer heim
með »Sado«. 1 skipinu voru 390 tunnur
síldar og 1600 krónur í peningum, sem
teknar voru út í útbúi Landsbankans á
Akureyri fyrir sölu á 40 smálestum af
nýrri síld. Allt, sem skip og skipshöfn
átti tapaðist.
»Fiskeren« 13. ág. 1930.
Hvalur í síldarnót.
Nýverið kom það fyrir, að hvalur kom
upp í nót, sem búið var að kasta. Síld-
veiðaskipið »Hænir« (áður ísbjörn) frá
Reykjavík hafði kastað nótinni, og er
því var lokið, kom upp hvalur í henni,
sem synti nokkra hringi innan um sild-
ina, sem í henni var, stakk sér síðan og
synti út úr nótinni, sem hann reif og
öll sildin á eftir.
Fiskverðið
Síðast i ágúst er verð á þurfiski þetta:
Austurlandsfiskur kr. 110 skp. 7* verk-
að 32 stk. í pakka.
Vesturlandsfiskur kr. 104—105 skp. SA
verkað 32 stk. i pakka.
Labradorfiskur kr. 76 skp.
Eftirspurn talsverð.
Skeyti frá »Bodö« 22. ágúst 1930.
Birgðir 2. ágúst 41,000 smál. Dagsverð
kr. 10,90 fyrir 20 kilo. Verðið bækkandi.
Aih. í Noregi er verðið miðað við fisk-
inn lausann i húsi.
Frystur fiskur til Barcelona.
í júlímánuði komu alls 310 smálestir
(ton) af frystum fiski á Barcelonamark-
aðinn frá íslandi. Fyrsta sendingin var
éigi uppseld hinn 4. ágúst og er svo
sagt, að sala sé dræm; má kenna nokkru
um, hve hitar voru miklir, svo eigi var
auðið að halda fiskinum óskemdum,
eftir hann var tekinn úr kælihúsunum.
Hvalveiðar.
Tveir norskir hvalveiðabátar komu til
Reykjavíkur um miðjan ágúst. Hafa þeir
verið að drepa hvali út af Faxaflóa og
Breiðubugt. Hafði annar þeirra náð 40
hvölum, en hinn yfir 30.
Um 600 smál. gufuskip liggur úti á
hafi og tekur á móti veiðinni.
(Eftir samtali við skipverja).
Síldveiði hefir brugðist
mjög tilfinnanlega við Skotlandsstrendur
í sumar og eins við Hjaltland. Þar hefir
verðmæti veiðinnar orðið 223000 sterlpd.
minna en i fyrra. Sumir ætla, að síldin
hafi horfið frá Hjaltlandi vegna þess, að
þar hefir orðið vart við afarmikla mergð
smokkfiska.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
RíkisprentsmitSjan Gutenberg.