Ægir - 01.10.1930, Síða 8
218
ÆGI R
bátum, því þó 1 stór vélbátur (um 20
smál.) ný byggður, bættist við, þá íjölgaði
bátunum ekki, heldur þvert á móti, því
1 var seldur burtu og einhverjir gengu
úr sér. Aftur fjölguðu opnu vélbátarnir
um 7—8. Af dekkuðu bátunum eru 7
yfir 12 smál. að stærð.
Mjóifjörður: í fyrra gengu þaðan 8
opnir vélbátar og 2 róðrarbátar, en nú
í ár 11 opnir vélbátar og 2 róðrarbátar.
Afli á þessa báta í ár 658 skpd. (í fyrra
350 skpd.).
Seyðisfjörðnr: 18 dekkaðir vélbátar
(þar af 1 aðkeyptur, sem kom i júni)
og 4 opnir vélbátar og 3 róðrarbátar (í
júní) gengu héðan á þorskveiðar á þessu
tímabili, og öfluðu 1508 skpd. í fyrra
gengu héðan 20 stórir vélbátar, og 6
opnir vélbátar og öfluðu 2153 skpd.
Fækkun bátanna liggur í því, að uppi
stóðu 3 dekkaoir bátar (þar af 2 yfir 12
smál. og 1 minni) og 2 trillur.
í verstöðvunum hér fyrir norðan
Seyðisfjörð, byrjaði ekki vertíð fyrr en
i .júní, svo yfirlit yfir aflabrögð þar, er
ekki hægt að gefa upp í þessari skýrslu.
Eins og sést á þessu yfirliti, hefir afl-
ast mikið meira yfirleitt hér i fjórðungn-
um á þessu ári en í fyrra, enda þótt
sumar verstöðvarnar séu lægri, eins og
t. d. Seyðisfjörður, og á Breiðdalsvík
aflaðist ekkert í vor. Sumar veiðistöðv-
arnar eru með svo langt um meiri afla
en í fyrra, Sérstaldega er það Horna-
fjörður yfir síðari hluta april og tyrri-
hluta maí, og svo Fáskrúðsfjörður, Norð-
fjörður og Mjóifjörður, sem hafa svo
langtum meiri afla en í fyrra.
Verð á saltfiski mun hafa verið al-
mennt á þessu timabili 30—36 aurar
fyrir kilo af stórfiski, og 28—32 aura kilo
af smáfiski, um verð á blautfiski var
ekki að ræða.
Nokkrir togarar frá Reykjavik, lögðu á
land hér eystra nokkuð af afla til verk-
unar i maímánuði, 3 hér á Seyðisfirði,
1 á Eskifirði og 1 á Fáskrúðsfirði. Sam-
tals var sá fiskur um 2150 skpd.
Síldveiði var hér óvanalega mikil í
vor. Sérstaklega á tímubilinu frá 25. april
til 10. maí, veiddist mikið af smásild
hér á Seyðisfirði í kastnætur. Annarstað-
veiddist ekki smásíld hér á Austurlandi,
nema lítilsháttar á Reyðarfirði. Hér á
Seyðisfirði veiddust um 11—12 hundruð
tunnur. Sildin var af þessari stærð, að
8—10, 10—12 og 12—14 gerðu kg. þunga.
Síld þessi öll var seld til beitu, á 30—40
kr. tunnan. Pað er mál manna hér, að
þessi síid sé gotin hér í firðinum, sé hér
uppalin og haldi sig hér þar til hún er
kynþroskuð. Nokkuð er það, að síldveiði
þessi hér á vorin er einlægt að aukast,
síldin að stækka og árgangarnir að fjölga,
sem veiðast.
Og athugandi er það, að um leið og
sildveiðin eykst hér, á vorin, þá minnk-
ar samskonar síldveiði á Eyjafirði á
sama tima.
Retta væri rannsóknarefni fyrir fiski-
fræðinga vora, og væri æskilegt að Fiski-
félagið vildi athuga þetta atriði, þvi það
er afar þýðingarmikið spursmál fyrir
Austfirðingafjórðung, að lifnaðarhættir
síldarinnar væru rækilega rannsakaðir
hér fyrir Austurlandi, bæði á fjörðum
inni og síldargöngur á hafinu. Slíktmundi
hafa afar mikla þýðingu fyrir þennan
landshluta.
Eg held ég hafi tekið flest fram hér,
sem máli skiptir um fiskiveiðar hér í
fjórðungnum í þetta sinn.
Seyðisfirði, 29. sept. 1930.
Iierm. Porsteinsson.