Ægir - 01.10.1930, Side 22
232
ÆGIR
ísfisksalan. gér gengin, enda flest smiðuð á tímabil-
_____ inu 1880 til 1886 og má það heita góð
ending. Nokkrir hinna islenzku kúttara,
Mestir togararnir eru nú á ísfiskveið- eru j ejgn Færeyinga og eru á veiðum
veiðum. 3 veiða í salt, en 1 ei í höfn ver(;g hverja, en á þeim er farið að sjá
í viðgerð. Eins og eftiifarandi yfirlit sem von er) en ajjjr voru þeir gæðaskip.
sýnir, hefir salan gengið treglega og er
mun lægri en í september og október =======
í fyrra.
Ferð Sala Meðalsala
ir samtals í ferð
Ágúst 1930 .... 6 £ 5.213 £ 869
— 1929 .... 9 £ 7.398 £ 822
September 1930 . 21 £ 18.496 £ 881
— 1929 . 16 £ 15.530 £ 971
Október 1930. . . 40 £ 36.061 £ 901
— 1929 . . . 27 £ 31.929 £ 1182
(31. okt. 1930).
IHO RE. 17, L. B. S. O.
siðasti Faxaflóakútterinn strandaði við
Gjögur við Reykjarfjörð á Ströndum,
mánudaginn 20. okt. í stdrviðri af norðri.
Skip þetta kom hingað til lands 1897,
keypt í Englandi og hét þá Marquess of
Lorne. Yogamenn keyptu skipið og
nefndu það »Egil«, og héldu því úti
skamma stund, síðan keypti trésmiður
Jóhannes Jósefsson það og hélt því úti
á veiðum, en hann hætti brátt útgerð
og eftir það áttu ýmsir skipið þar til
H. P. Duus verzlun eignaðist það 15.
júlí 1910. Var Ólafur ólafsen forstöðu-
maður verzlunarinnar, kom hann hing-
að á sumrin, en var búsettur í Kaup-
mannahöfn. Hann breytti nafni skipsins
og nefndi það »Iho«; er nafnið samsett
af upphafsstöfum nafna sona hans, Ingv-
vars, Hálfdáns og ólafs. Hefir skipið
borið það heiti síðan.
Einhverjar leifar munu eftir af kútter-
flota landsins, en skipin munu flest úr
I
John Finsen
dómari
andaðist nýlega í Kaupm.höfn, sjötugur
að aldri. Hann var sonur Hilmars Finsen
landshöfðingja, og var fæddur í Danmörku
árið 1860, en fluttist til Reykjavíkur með
föður sínum árið 1865. — Síðustu æfi-
árin var hann dómari í Suður-Birki
Kaupm.höfn.
Heiðurssamsæti.
Þriðjudagskvöldið 28. okt. þ. á. var
útgerðarstjóra Eimskipafélags íslands,
E. Nielsen, haldið veglegt samsæti á
»Hótel Borg«, og sátu það um 200 manns.
Til veizlu þessarar höfðu margir boðað
og átti það vel við, því E. Nielsen hefir
með starfi sínu og framkomu aflað sér
virðingar og vináttu manna um land allt.
Fyrir veizlunni gengust: Verzlunarráðið,
Samband ísl. samvinnufélaga, Sjóvátrygg-
ingarfélagið, skipstjórafélagið »Aldan«,
Félag íslenzkra botnvörpuskipaeigenda og
Eimskipafélag Islands. — Margar ræður
voru fluttar og fór samsæti þetta hið
bezta fram.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
Rikisprentsmiðjan Gutenberg.