Ægir - 01.10.1930, Page 23
Æ G I R
FJORÐUNGSÞING
Fiskideilda í Sunnlendingafjórðungi
veröur háð í í Kaupþingssalnum í Reykjavík
föstudaginn 5. desember næslkom. og hefst
klukkan 1 e. h.
Deildir eru minntar á að fylgja ákvæðum laga um
f j órðungsþing um fu 111rúakosningar.
Meðal þeirra mála, sem fyrir fjórðungsþinginu
liggja, er ráðstöfun á fé því, er síðasta Fiskiþing
veitti fjórðungnum. Einnig fer fram á þinginu
kosning 2ja fulltrúa og 2ja varafulltra á Fiskiþing.
Með því að nú virðist hentugur tími fyrir deildir
að starfa, er þess fyllilega vænst, að þær haldi
svo fjörlega uppi fundum fram að þinginu, að
fulltrúum verði kleift að gefa upplýsingar um
vakandi samstarfanda á sviðum hins mikilvægasta
atvinnuvegar íslendinga.
FJÓRÐUNGSSTJÓRNIN.
Aths.
Til fjórðungsþinganna er kosið á þann hátt, að hver fiskideild
innan landsfjórðungsins kýs einn fulltrúa fyrir hverja 50 með-
limi eða færri, þannig að fyrir 10—50 meðlimi er kosirin 1
fulltrúi, 51--100 meðlimi eru kosnir 2 fulltrúar, 101 — 150 3
o. s. frv.
Deildir eru beðnar að athuga samþyktir síðasla Fiskiþings um
fulltrúakosningar, sjá bls. 41 — 42 í þingskýrslunni síðustu.