Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1933, Blaðsíða 7

Ægir - 01.06.1933, Blaðsíða 7
ÆGIR 149 Rauði jarðslaginn. i. Roði á verkuðum saltfiski er löngu þekkt, illræmt fyrirbrigði víðast hvar, er slíkur fiskur er framleiddur eða hafður til neyzlu. Fyrirbrigði þetta virðist ekki frekar bundið við saltfisk einnar þjóðar en annarar, heldur geta komið fram all- staðar, þar sem saltfiskur er verkaður. Allar þær þjóðir, sem saltfisk framleiða, eiga því meira og minna við plágu þessa að stríða. Eru skemmdir þessar bæði út- breiddari og skaðlegri en brúnu skemmd- irnar eða brúni jarðslaginn, er áður hef- ur verið lýst1. Það er því ekki að ástæðu- lausu, að fjöldi vísindamanna, viðsvegar um heim, hefur rannsakað roðann á salt- fiskinum og leitast við að ráða bót á honum. Flestum þeim, sem rannsakað hafa rauðan saltfisk, ber saman um það, að orsök roðans séu rauðir gerlar, er hfa á saltfiskinum og þola mjög sterkar upplausnir af salti (teknisku NaCi). Hvað snertir uppruna þessara gerla og lifn- aðarhætli, eru niðurstöðurnar aftur á roóti nokkuð á reiki, og ber það til að margir þeirra, sem við þetta hafa fengist, hafa ekki þekkt rannsóknir hver ann- ara. Hafa þessir gerlar því fengið mjög margvísleg heiti, og lýsingarnar á þeim eru oft svo takmarkaðar og ósambæri- ^egar, að ekki er gott að segja um hvort hér er um eina eða fleiri tegundir að ræða. Fyrstu rannsóknirnar á rauðum salt- flski voru gerðar í Ameríku árið 1880. Vor þær gerðar af Farlow8. Orsök roð- 0 Ægir, 2. tbl. 1933. 2) Tekið eítir Klebahn : Die Schadlinge des ýtippBsches. Mitteil. a. d. Inst. f. Alg. Botanik ln Hamburg 4. 1919. ans taldi hann vera rauðleitan þörung, sem bærist með saltinu á fiskinn og í geymsluhúsin. Benti hann á að Cadix- salt innihéldu þessar lífverur, og ráð- lagði því að nota Tropanisalt, auk þess sem hann lagði áherzlu á aukið hrein- læti við verkun fisksins. Á þessum rauða fiski fann Farlow ennfremur geril- tegund, sem hann nefndi Sarcina morr- huae og sveppinn Torula epizoa.sem síð- ar reyndist vera orsök brúnu skemmd- anna. Á árunum 1884—88, var roðinn á salt- fiskinum einkum rannsakaður í Ameriku og Frakklandi, og bar mönnum ekki saman um orsök hans og heilbrigðislega þýðingu. Töldu sumir að rauður salt- fiskur væri hættulegur til neyzlu ogbentu aðallega á tvö dæmi, annað í Algier og hitt í Leningrad, þar sem fleiri manns í einu höfðu veikst af að neyta rauðs fisks. Síðar benti Layet1 á það, að slíkar eitr- anir þyrfti ekki að setja í samband við roðann á fiskinum, af því að þær stöf- uðu sennilega af gerlum, sem oft finnast í skemmdum fiski, hvort sem hann er rauður eða ekki. Nú er almennt álitið að rauðu gerlarnir á saltfiskinum séu út af fyrir sig hættulausar, en eitr- anir af völdum annara gerla geta komið í hvaða fislc sem er, ef hann er vanhirtur. Slíkar eitranir eru samtfrem- ur sjaldgæfar. Á rauðum saltfiski voru gerðartalsverð- ar rannsóknir af Edington árið 18882. Edington tókst að hreinrækta margar ólíkar geril-tegundir út frá fiskinum og var ein þeirra rauð. Taldi hann að þessi gerill væri orsök roðans og gaf honum nafnið Bacillus rubescens. Fann hann hann einnig í salti, en getur þvi miður ekki um, hvaða salt það hafi ver- 1) Sömuleiðis eftir Klebahn. 2) Sömuleiðis eftir Iílebahn.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.