Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1933, Blaðsíða 11

Ægir - 01.06.1933, Blaðsíða 11
ÆGIR 153 og áður var getið, og önnur var mjög svipuð gerlategund, sem ég hreinrækt- aði úr salti í vetur og ekki heldur reynd- ist geta orsakað roða á saltfiski. Það var i byrjun marz síðastliðinn, að þessum tilraunum var lokið. Þávarupp- i'unalega fisksýnishornið, sem geymt hafði verið í Petri-skál við stofuhita frá því í október, orðið mjög rault. Hafði það greinilega »alkaliska« svörun og lagði af því mjög slæma lykt. Var nú sáð út frá því að nýju og höfð aðferð sú er Hol- lendingurinn Petter hafði notað, en hún er meðal annars fólgin í þvi, að notað er æti, sem inniheldur allt að 30°/o salt. Eftir 2 — 3 vikur komu i Ijós örlillar dökk- rauðar breiður, sem innihéldu stafgerla. í fljótandi æti reyndust þær hafa eigin- hreyfingu og þar urðu þær miklu lengri. Stærð þeirra var þessi: Á föstu *ti, breidd ca 0,8 /r og lengd 2—7 /u og i fljótandi æti, svipuð breidd en lengd- in oft allt að 15 /u. Eins og búast mátti við höfðu gerlar þessir mjög háan »osmaliskan« þiýsting. Væru þær t. d. seltar i upplausn, sem innihélt undir 20°/o salt, bólgnuðu þær út og leystust að síðuslu upp (Plasmolyse), en það er sama fyrirbrigðið og Klebahn fann hjá Bact. holobius ruber. Átilbúnumæt- tim uxu gerlarnir mjög treglega og að eins við 20—30n/o innihald af salti. Þessari geriltegund var nú sáð á vel útlítandi, verkaðan saltfisk á sama hátt og áður og ræktað við 29° C. Eftir 2 vikur var fiskur þessi orðinn greini- lega rauður og eflir 3 vikur dökkrauður og lyktarslæmur. Höfð voru mörg sýnis- horn af samskonar fiski til samanburð- ar, en á þeim sá ekki neitt eftir 8 vikur. Var þar með sannað að þessi gerilteg- und var orsök roðans. Þar sem gerill þessi vex afar treg- lega á tilbúnum ætum, þarf mjög lang- an tíma, til þess að rannsaka hann til hlítar, og er sú rannsókn því að eins að byrja. Eftirfengnum einkennum að dæma líktist hann mjög Bact. halobium Petter, og er hér sennilega um sömu tegund að ræða. Samanborið við geril þann, er hrein- ræktaður var í Reykjavík, þá framleiðir sá er nú fannst, miklu sterkari roða bæði í hreinrækt og í fiskinum, auk þess sem hann vex treglegar og þolir miklu meira salt, Ekki er samt óhugsandi, að hér gæti verið um sömu tegund að ræða, því að einmitt þessir eiginleikar eru senni- lega nokkuð breytilegir, en ekki verður farið nánar út í það í þetta skifti. III. Það sem mestu máli skiplir, hvað roð- ann á saltfiskinum snertir, er vafalaust það, á hvern hátt honum verði útrýmt. Þeir sem hafa rannsakað roðann, hafa stungið upp á ýmsu, lil þess að verjast honum, en flestar þeirra aðferða eru því miður óframkvæmanlegar. Það er auð- vitað hægur vandi að setja ýmis efni í fiskinn, sem drepa rauðu gerlana, en slik efni eru ekki að eins skaðleg fyrir gerl- ana, heldur einnig fyrir þá, sem eiga að neyta fisksins. Það er mjög gamalt viðfangsefni, sem enn þá er hvergi nærri fullleyst, hvern- ig drepa megi gerla í matvælum án þess að skaða matvælin sjálf. Ein bezla lausnin á því, hefur hingað til verið sölt- unin, en eins og sýnt hefur verið fram á, þá er hún ekki heldur óbrigðul. Enn sem komið er, þekkjum við þvi ekkert efni, sem setja má í saltfisk í svo stór- um stíl, að það drepi rauðu gerlana, án þess að skaða fiskinn og gera hann óhæfan til neyzlu. Sýktan fisk er þvi ekki hægt að gera jafngóðan aftur. Honum verður alls ekki bjargað, nema

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.