Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1933, Blaðsíða 5

Ægir - 01.12.1933, Blaðsíða 5
ÆGIR silfri, raeð einkennisstaf, einum eða tveim- ur (E England, Da Danmörk, stundum líka svæðisstaf), og númeri, tíðast fest (með silfurvír) á kjálkabarðið á bolfisk- um (t. d. þorski), eða utan til á »bakið« á flatfiskinum1. Um leið og fiskurinn er merktur, er hann mældur, tekin af honum nokkur hreisturblöð (þorskur) eða veginn (flatfiskur). Mjög er miserfitt að merkja fiska ; auðvelt að merkja líf- seiga fiska, eins og skarkola og þorsk, en erfitt þá sem eru ólífseigir, eins og ýsu og ufsa og síld hefur ekki tek- ist að merkja vegna þess, hve lítið hún þolir. Á þessum 30 árum, sem unnið hefur verið að samþjóða merkinguin, hafa ver- ið inerkt feikn af nokkurum fiskateg- undum, einkum þorski og ýmsum flat- fiskum, sérstaklega skarkola og hafa merkingarnar gefið mikilsverðar upplýs- ingar um göngur, vöxt og aðra lífshætti hinna merktu fiska, en því miður er hér eigi auðið að skýra neitt nánara frá þeim í heild sinni, til þess er tíminn of naumur. Verður því aðallega skýrt frá merkingunum hér við land og við ná- grannalönd vor, að því leyti, sem þær hafa varpað birtu yfir lífshætti íslenzkra fiska. Eins og áður var vikið að, fóru Dan- ir að merkja fisk hér við land, þegar á 1. ári samvinnu-rannsóknanna, sumarið 1903. Þá voru merktir 280, (30—48 cm langir) skarkolar á rannsóknaskipi þeirra »Thor« á Sjálfanda, síðustu dagana í júní. — Sumarið 1904 merktu þeir (á »Thór«) þorska, (41—102 cm langa) í Loðmundarfirði, 25. júli og 194 á Hér- aðsflóa, 3 dögum síðar og var ég þá á 1) Fangamörk og annað krot, sem stundum e» á hvítu hliðinni á sprökum, hafa fiskimenn skorið af rælni, en eiga ekkert skylt við vís- indalegar merkingar. 279 skipinu og var viðstaddur allar merk- ingarnar. — Sumarið 1905 voru merktir, að mér viðstöddum, 494 skarkolar (31— 57 cm langir) í Vopnafirði, 28.-29. júlí 391 þorskur (41 — 67 cm langur), á Skaga- firði, 10.—18. ágúst og 26 þorskar (50— 60 cm langir) við Hrísey á Eyjafirði 16. og 22. ágúst. Svo var ekki merkt neitt næstu 2 ár. Þessar fyrstu sjófiskamerkingar hér við land voru gerðar í þeim tilgangi, að fá vitneskju um, hvað um þenna fisk, hálf- vaxinn eða fullþroskaðan yrði, sem á sumrin dvelur i kaldari sjónum fyrir norðan og austan land. Utkoman af kolamerkingunum var, í aðaldráttum þessi: í árslok 1906 höfðu 14 skarkolar. eða 5% af þeim 280, sem merktir voru á Skjálfanda 1903, veiðst aftur, eftir 12 — 14 mán., 2 á Skjálfanda og Axarfirði, 3 á Eyjafirði, 1 á Húnaflóa, hinir flestir úti fyrir Vestfjörðum, o: kol- inn hafði yfirleitt flutt sig vestur á bóg- inn, í áttina til hlýja sjávarins, til hrygn- ingar fyrir vestan og sunnan land. Síð- an hafa engir endurveiðst. í árslok 1909 höfðu 33 skarkolar eða 5,67°/» af þeim 494, sem merktir voru á Vopnafirði 1905, veiðst aftur, eftir 4 — 45 mán., 5í Vopnafirði, 4 við Langanes, en flestir á milli Glettinganess og Vest- manneyja, o: sótt í hlýja sjóinn, og skemmstu leið, eins og Skjálfandakolinn. — Það af hinum endurveidda kola, bæði úr Skjálfanda og Vopnafirði, sem hafði verið nokkuð lengi í sjó, óx töluvert, þegar um ungan og óþroskaðan fisk var að ræða, annars lítið. Gáfu þessar fyrstu kolamerkingar þannig miklar upplýsing- ar um göngur skarkolans og vöxt. Útkoman af þorskmerkingunum varð þessi: í árslok 1907 höfðu 29 fiskar, eða 5,9n/«, endurveiðst af þeim 491, sem merktir voru í Loðmundarfirði og Hér-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.