Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1933, Blaðsíða 16

Ægir - 01.12.1933, Blaðsíða 16
290 ÆGIR 27. Meðmæli með styrkveitingabeiðn- um. Fjárhagsnefnd leggur fram tillögur til meðmæla með neðantöldum beiðnum. »a. Að mæla með styrkbeiðni útgerð- armanna í Ólafsfirði kr. 1500,00 til Fiski- félags íslands til að standast kostnað við fullnaðarbyggingu dráttarbrautar fyrir báta í Ólafsfirði. b. Að ítreka áskorun til Fiskifélagsins um styrk til bátabryggju á Litla-Árskóg- arsandi, samkvæmt heimild til þessarar fjárveitingar á síðasta Fiskiþingi. c. Að skora á stjórn Fiskifélagsins að hlutast til um að ríkisstjórnin láti fram fara uppmælingu á Flateyjarhöfn á Skjálf- anda, þegar á næsta sumri. d. Að skora á stjórn Fiskifélags og Fiskiþingið, að beita sér fyrir því við hlutaðeigandi valdhafa, að byggð verði ný símalína frá Litla-Árskógarsandi að Rauðuvík, er liggi um útróðrarstaðinn Selárvík, svo fljótt sem unnt er, og verð- ur nauðsyn þessa máls skýrð í erindi er hlutaðeigandi menn senda Fisldfélaginu innan skamms«. Tillögur þessar voru bornar upp hver fyrir sig og allar samþykktar. 28. Veðurathuganir. Málshefjandi Þor- steinn Stefánsson. Borin upp og samþ. svohljóðandi tillaga. »Fjórðungsþingið Norðlendinga beinir þeirri ósk til Fiskifélagsins, að það hlut- ist til um við veðurstofuna í Reykjavík, að birtar verði framvegis veðurathuganir frá þeim stöðum, sem næst liggja hafinu. t. d. Siglunesi, Kálfshamarsvík, Skálum á Langanesi o. íl, en sleppa frekar þeim er liggja uppi í landi«. 29. Lánsstofnun fyrir sjávarútveginn. Bornar voru upp svohljóðandi tillögur: 1. Fiskiþingið skorar á Fiskifélags- stjórnina, að hún beiti áhrifum sínum í þá átt, að milliþinganefndin i sjávarút- vegsmálum taki upp á væntanlegar til- lögur sínar, að leggja eindregið til, að sett verði á fót lánsstofnun fyrir sjávar- útveg landsmanna, er veiti hagkvæm lán til rekstrar útgerðarinnar. 2. Fiskiþingið skorar á Fiskifélags- stjórnina í Reykjavik, að gangast fyrir því, að forvextir við Útvegsbanka íslands verði færðir niður, þannig, að þeir verði ekki hærri en við Landsbankann. — Tillögur þessar voru samþykktar. 30. Bann á innflutningi gamalla er- lendra fiskibáta. Málshefjandi Páll Hall- dórsson. Eftir talsverðar umræður var þessi tillaga samþ. með 6 atkv. gegn 4. »Fjórðungsþingið telur að reynsla und- anfarandi ára liafi ótvirætt sannað, að kaup íslendinga á erlendum vélbátum sé afar vafasöm, þar sem slikir bátar hafa í fleiri tilfellum reynst ótraustir og hættulegir lífi áhafnarinnar. — Vill því fjórðungsþingið með atbeina stjórnar og þings Fiskifélags íslands, leggja til við alþingi, að innflutningur gamallra er- lendra fiskibáta verði bannaður með lögum«. 31. Mat á lýsi. Flutningsm. Jóhannes Jónasson. 1 því máli var borin upp og samþykkt þessi tillaga. »Þingið skorar á stjórn Fiskifélagsins, að hún hlutist til um ekki síðar en á næsta sumri verði fullkomið mat á lýsi framkvæmt á Siglufirði, Akureyri og öðrum þeim stöðum, sem lýsi er flutt út frá, svo ekki þurfi að senda lýsið til Reykjavíkur til mats, eins og að undan- förnu«. Þessi tillaga var samþykkt. 32. Þá var gengið til kosninga á 2 fulltrúum fyrir næstu 4 ár lil Fiskiþings- ins í Reykjavík. Kosningu hlutu þessir: Guðmundur Pétursson með 9 atkv. og Páll Halldórsson með 9 atkv. F*á voru kosnir 2 menn til vara: Steindór Hjalta- lín með 8 atkv, og Páll Bergsson með 6 atkv.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.