Ægir - 01.12.1933, Side 9
ÆGIR
283
Thor Jensen sjötugur.
Hinn 3. desember varð Thor Jensen
sjötugur. Hann er fæddur í Danmörku,
en kom hingað til lands um fermingar-
aldur og hefur að mestu dvalið hér síð-
Thor Jensen.
an. Veru sína hér byrjaði hann við verzl-
un á Borðeyri og fram eftir æfinni var
verzlun hans aðalstarf en um leið stund-
aði hann landbúnað, átti jarðir og kvik-
fénað, var og hefur ávalt verið stórhuga
maður.
Hann var einn af þeim, sem stofnuðu
hið fyrsta togarafélag landsmanna, félag-
ið »Alliance« og síðar »Kveldúlfsfélagið«,
sem er hið stærsta útgerðar- og verzl-
unarfélag landsins. Sömuleiðis var hann
einn af framkvæmdastjórum P. I. Thor-
steinsson & Co., almennt nefnt miljóna-
félagið, sem var eítt með hinum mestu
verzlunartyrirtækjum þessa lands ogveitti
mönnum vinnu í þúsundatali. Slæm ár
og ýmsir örðugleikar urðu til þess, að
félagið varð að hætta í Iok ársins 1913,
en hefði það komist yfir það ár, myndi
það að líkindum starfa enn, sem hið
stærsta og öflugasta verzlunar- og út-
gerðarfélag landsins.
Thor Jensen átti drjúgan þátt i stofn-
un Eimskipafélags íslands og var form.
maður í bráðabirgðastjórninni, sem hratt
máli því áfram.
Hann var einn af eigendum og fram-
kvæmdastjóri Iíveldúlfs fyrstu árin, mun
hafa stjórnað þar einn og farið sínar
leiðir. 1 nóvember 1922, festi hann kaup
á jörðinni Korpúlfsstöðum í Mosfells-
sveit og byrjaði þar búskap, vorið 1923,
en þá gerðust hinir efnilegu synir hans
framkvæmdastjórar Kveldúlfs. 1 höndum
Thor Jensens, er hin litla jörð á 10 ár-
um orðin hin mesta bújörð landsins, að
víðáttu, húsum, nýtízkuvélum og verk-
færum og bóndinn þar er hann sjálfur
þótt sonur hans sé bústjóri.
Thor Jensen er gáfumaður og hefur
alla sina tíð verið stórhuga og afkasta-
maður með afbrigðum.
Spánarför fyrir 44 árum.
Það var árið 1889 að fyrsti stóri flski-
kútterinn, sem hingað var keyptur, kom
til Reykjavíkur. Það var kútter Margrét,
er Geir kaupm. Zoéga hafði keypt þá
um veturinn í Danmörku og sent Guð-
mund skipstjóra Kristjánsson, ásamt 4
hásetum til að sækja, en stýrimaður var
danskur.
Yar þetta vandað og gott skip, aðeins
6 ára gamalt, smíðað í Danmörku, rúm-
ar 80 smálestir að stærð. Kom það hing-
gð í marzmápuðj þlaðið vörum til eig-