Ægir - 01.12.1933, Síða 14
288
ÆGIR
ið, einungis að Eyjafjörður geti komið
til greinact.
Tillaga þessi var samþ.
13. Þá lagði sama nefnd fram svo
hljóðandi tillögu viðvíkjandi verksmiðju-
rekstri á Raufarhöfn.
^Þar sem líkindi eru til, að verksmiðj-
an á Raufarhöfn verði framvegis starf-
rækt, lítur þingið svo á, að fyrst um
sinn sé ekki ástæða til að mæla með
ríkishjálp til rekstrar þar. Auk þess er
mál þetta svo lítið undirbúið. og þing-
menn ekki nægilega kunnir staðháttum,
og vill því að svo komnu máli ekki taka
neina ákvörðun um verksmiðjurekstur
þarna, þó það hins vegar viðurkenni að
nauðsyn beri til, að síldarverksmiðja sé
þar starfrækt«.
Tillaga þessi var samþ.
14. Þá las erindreki Páll Halldórsson
upp greinilega og ítarlega skýrslu um
starf erindrekans yfir árið og að nokkru
leyti um ástand útvegsins í umdæmi hans.
Forseti þingsins vottaði honum þakklæti
þess fyrir skýrsluna, og var þá tekið
fyrir næsta mál á dagskrá.
15. Mat á þurum beinum. Málshefjandi
Jónas Jónsson. 1 þessu máli var samþ.
svo hljóðandi tillaga
»Fiskiþingið telur ástæðu til þess, að
þur bein til vinnslu séu metin og felur
Fiskiþingi íslands að taka málið til at-
hugunar«.
16. Slysatryggingarmál. Varaforseti fé-
lagsins Stefán Jónasson var málshefj-
andi. 1 málið var kosin 3 manna nefnd.
Iíosningu hlutu : Jóhannes Jónasson, Sig-
urvin Edilonsson og Páll Bergsson. Þá
mætti á fundinum fulltrúi fyrir Dalvík-
urdeild, Loftur Jónsson.
17. Þá las forseti upp fjárhagsreikning
fjórðungssambandsins fyrir árið 1932.
Eignir í sjóði 1. jan. 1932 kr. 902,70.
Reikningurinn var samþ.
18. Fjárbeiðnir og umsóknir um með-
mæli til Fiskifélag Islands, um fjárstyrki.
Samþ. að kjósa 3 manna nefnd í málið.
Kosningu hlutu : Páll Halldórsson, Guðm.
Pétursson og Þorsteínn Stefánsson.
19. Samþ. var að senda eftirfarandi
skeyti til Jóns Pálmasonar þm. Húnv,:
Alþm. Jón Pálmason, Reykjavík.
»Fjórðungsþingið samþ. í dag eindreg-
in meðmæli Skagaströnd, sem sildar-
bræðslulóð, ef nægilegar hafnarbætur fást
á næstu 2 árum.
1 umboði fjórðungsþingsins.
Guðm. Pétursson, Páll Bergsson«.
20. Þá samþ. þingið svo hlj. tillögu.
»Fjórðungsþingið heimilar stjórninni,
að verja allt að 1200 kr. til fulltrúafund-
ar útgerðarm. og sjóm. í fjórðungnum,
ef henni þykir nauðsyn bera til«.
21. Síldarsamlagsmál. Nefndin i því
máli lagði fram nokkrar tillögur.
»Fjórðungsþingið er ekki mótfallið
skipulagsbundinni sölu á sild, sé félags-
skapurinn stofnaður og starfræktur á
heilbrigðum grundvelli, en vill ekki leggja
til að stofnaður sé slíkur félagsskapur
að svo stöddu«.
Minni hluti nefndarinnar lagði fram
svohljóðandi tillögu:
»Fjórðungsþingið telur æskilegt, að
sfofnað verði lögverndað síldarsamlag.
þar sem sildareigendur einir hafi öll yflr-
ráð samlagsins í sfnum höndum. Fáist
það ekki, lítur þingið svo á, aðsalasild-
ar eigi að öllu leyti að vera frjáls og án
afskifta hins opinberaa.
Meiri hluta nefndarálitið var samþ.
með 6 atkv. gegn 3.
Þá bar sama nefnd upp svo hljóðandi
tillögu.
»Fjórðungsþingið leggur eindregið til
að ríkisstjórnin leiti samninga við sænsku
rikisstjórnina, um að Sviar kaupi enga sild,
sem veidd sé við lsland fyrir 25. júlí, og