Ægir - 01.12.1933, Qupperneq 18
292
ÆGIR
arverksvið þeirra, það, sem nú er komið
daginn.
Rekakkeri og góður kaðall, um 30 fm.
langur 3—4 tomma gildur, kostar 60—
70 kr.; það eru útgjöldin fyrir trillubát,
en þau geta líka bjargað mönnum og
skipi, en þeir sem vilja komast hjá slílc-
um útgjöldum, geta kennt því um, að
fyrir því séu engin skrif, sem heimti það,
og það er rétt, reglugerð vantar, stað-
festa af konungi.
En til þess að menn geti glöggvað sig
á, hvað aðgætinn íiskimaður og formað-
ur kysi og ætti að hafa í hát sínum er
hann leggur út á djúpið til veiða, set ég
hér reglur, sem menn ættu að athuga,
og íhuga hvort ofmikið er tiltekið, þegar
þess er gælt, að vélar geta ávalt bilað
og sjór er oft sóttur i svartasta skamm-
deginu.
Sjóvátryggingarfélag íslands h.f. hefur
sett eftirfarandi ákvæði í vátryggingar-
skírteini fyrir opna báta með hreyfivél.
Um vátrgggingu þessa gilda þessi atriði:
1. Skírteini þetta tryggir eigi gegn tjóni,
er stafar af hernaði, og eigi gegn
tjóni, er stafar af tundurskeytum eða
tundurduflum, hvorki þeim, sem við
festar liggja eða eru á reki, þólt á
friðartímum sé.
2. Fylgja ber hverjum bát:
a) Ljósker með skæru ljósi.
b) 4 árar, framsegl, fokka og klýfir.
c) Akkeri eða dreki með 9 feta keðju
með 50 faðma löngu stjórafæri,
4 þuml. að hringmáli.
d) 2 austurtrog eða fötur, rekakkeri
og áttaviti.
c) Loftkassar skulu settir í alla báta
sé þess kostur og séu þeir ekki
minni en 10°/o af rúmmáli bátsins.
f) í bátunum skal vera tvöfalt fram-
stefni og gegnumhnoðaður minnst
annar hver bandanagli og traust
krikkja í barka, með augabolta
til þess að festa í dráttartaugar.
3. Reglum þeim og fyrirmælum, er gilda
á hvaða tíma sem er, um eftirlít af
hálfu hins opinbera með opnum
mótorbátum skal nákvæmlega fylgt.
4. Sé fyrirmæla 2. gr. ekki gætt er vá-
tryggingin ógild. Sé fyrirmæla 3. gr.
ekki gætt er tjón það er af því hlýst
vátryggjendum óviðkomandi.
5. Pegar slys ber að höndum, er vá-
tryggðum skylt að gera allar ráð-
stafanir til að bjarga og vernda hið
vátryggða og draga úr tjóni þvi, er
af slysinu hlýzt; svo er honum og
skylt að skýra vátryggjendum frá
málavöxtum svo fljótt sem auðið er.
6. Skaðabætur greiðast í siðasta lagi 2
mánuðum eftir að öll skilríki, sem
með þarf, hafa verið lögð fyrir vá-
tryggjendur.
7. Ef báturinn reynist svo skammt
settur, að sjór nái til hans svo hann
verði fyrir áföllum, er sá skaði fé-
laginu óviðkomandi. Þó það sé aðal-
reglan að bátar skuli settir eftir hvern
róður, má í einstökum tilfellum veita
undanþágu, ef félagið samþykkir
legufæri og legustað.
Menn bera það fyrir sig, að rúm í
litlum fiskibátum leyfi ekki ioftkassa, en
aldrei ætti þó rúm að vera svo takmark-
að, að ekki kæmust þeir loftkassar fyrir,
sem bæru eða fleyttu vélinni.
Ressi ákvæði félagsins eru í fyrsta lagi
sett, til að draga úr áhættu tryggingar-
innar, en um leið eru þau sett með til-
liti til öryggis mannslífa á sjónum.
Stjórafærið má hafa við rekakkerið
þegar ástæður heimta, að það sé notað.
— Það má reka fyrir mörgu, ef í nauð
er komið, en fyrir smábáta er tilbúið
rekakkeri hið bezta.