Ægir - 01.12.1933, Síða 22
296
ÆGIR
Dánarfregn.
Á aðfangadagskvöld jóla andaðist hér
í bæ Kristinn Jónsson lyfjafræðingar á
Reykjavíkur apotheki, eftir uppskurð.
Allir Reykvíkingar þekktu hann og þótti
vænt um hann, enda átti hann það skil-
ið. Hér er ekki rúm til að minnast hins
mæta manns og góða drengs, en von-
andi gefst tækifæri síðar.
Auglýsing
um þátttöku Islands í alþjóðasam-
þykktinni frá 31. maí 1929 um öryggi
mannslífa á sjónum.
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 55, 23. júni
1932, um viðauka við lög nr. 58, 14. júní
1929, eru selt eftirfarandi fyrirmæli.
1. gr. Alþjóðasamþykktin frá 31. mai
1929 um öryggíð á sjónum gengur í gildi
af íslands háltu þegar í stað.
2. gr. Skylda sú, er hvilir á íslenzkum
skipum til að hafa fengið skírteini þau,
sem skipum er skylt að hafa samkvæmt
nefndri alþjóðasamþykkt, kemur þó fyrst
til framkvæmda, er hlutaðeigandi skip
hefir verið skoðað hér á þessu ári, eða
erlendis í umboði rikisstjórnarinnar, sbr.
heimild i 3. gr. laga nr. 55, 1932. Þó
skulu öll íslenzk skip, er alþjóðasam-
þykktinni lúta, hafa fengið nefnd skír-
teini fyrir 1. janúar 1934.
Framkvæmd eftirlitsins skal byggða-
fyrirmælum í alþjóðasamþykktinni.
Þetta tilkynnist hlutaðeigendum til
eftirbreytni.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið,
3. júlí 1933.
Magnús Guðmundsson.
Aths. Augltjsingar um gmsar ráðslaf-
anir til örgggis við siglingar o. fl. eru
ekki birtar hér sökum rúmleysis, en þær
eru prentaðar í almanaki fyrir íslenzka
sjómenn, og þar sem það á að fylgja
fiskiskipum, geta menn lesið þær þar,
einnig breytingar á hinum alþjóða sjó-
ferðareglum, sem bráðnauðsynlegt er að
formenn og stýrimenn skipa og báta lesi
og læri.
cJlecjir
a monthlg review of the flsheries and flsh
trade of Iceland.
Published bg: Fiskifélag íslands (The
Fisheries Association of Iceland) Regkjavík.
Results of the Icelandic Codflslieries
frorn the beginning of tliegear 1933 toihe
lst of december, calculaled in fullg cured
slate:
Large Cod 47.805, Small Cod 19.667,
Haddock 293, Saithe 555, total 68.320 tons.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
Vigfús Einarsson,
Rikisprentsmiðjan Gutenberg,