Ægir - 01.05.1934, Síða 18
124
ÆGIR
sjór væri i skipinu, en eðlilegt þótti og
hefði þá Skorup stungið upp á því, að
hinn mjóslegnasti maður á skipinu væri
látinn skríða inn undir ketilinn, til þess
að athuga lekastað! Þegar hann hafði
lokið því slarfi og gert grein fyrir, hvers
hann varð þar var, kvaðstskipstjóri hafa
skipað að draga inn vörpuna.
Nokkru sfðar fór hann niður í vélar-
rúmið og hafði þá Skorup dregið eldana
úr eldholi og voru þá gólf í kyndistöð
og vélarrúmi komin í kaf.
Þegar skipstjórinn sá hver hættan var,
sendi haun neyðarmerki til togarans
»Essen«, sem var að veiðum í 2ja mílna
fjarlægð.
Þegar skipshöfnin fór frá »Wodan«,
náði sjórinn upp í miðja bullustrokka
og skömmu síðar sökk skipið; var þá
kl. 3 t. 7 m. e. h.
Við rannsókn i málinu kom það fram,
að Friedrich Kuhr hafði vátryggt »Wo-
dan« í Hamborg fyrir 40 þúsund mörk
án þess að stjórn félagsins vissi um það,
því skipið var vátryggt fyrir 180 þúsund
mörk og auk þess 1000 pund sterling.
Þegar Kuhr vátryggði skipið i Hamborg
var hann ekki spurður um neitt. Hann
kvaðst hafa gert þetta af varkárni, skyldi
skipið farast, eða því yrði sökkt.
Kuhr játaði einnig, hvað þeim Skorup
hafði farið á milli og ráðstafanir þær,
sem hann hafði gert þegar hann samdi
við Skorup um að sökkva skipinu.
Við réttarhöldin upplýstist, að botn-
vörpuskipið »Wodan«, sökk hinn 20.
febrúar. meðan b.s. »Essen« var að draga
það. — »Wodan« sökk á 63° 53' nbr.
og 23°01' vestl. lengdar um 7 mílur frá
landi og var yfirgefið kl. 2Vs e. h.
Fyrsti vélstjóri sökkti skipinu með því
að opna loka og láta sjó streyma inn í
það. Áður en farið var úr höfn, varð
skipstjóri þess var, að Skorup var að
vinna við nefndan loka, en athugaðiþað
ekki frekar. Kuhr hvatti Skorup til verks-
ins og lofaði að greiða honum 10 þús-
und mörk fyrir, eins og áður er getið;
ætlaði Kuhr síðan að fá þau 40 þúsund
mörk útborguð hjá ábyrgðarfélagi því,
sem tryggði á hans nafn.
(The Fishing News) 7. apríl 1934.
Frá utanríkismála-ráðuneytinu.
Hinn 11. apríl 1934 gefa landbúnaðar-
og fiskimálaráðherrann breski og ráð-
herra Skotlands út, svohljóðanditilskipun:
Enginn maður í Stóra-Bretlandi má
selja, sýna, bjóða til sölu, eða hafa í eigu
sinni, í þeim lilgangi að selja, nokkurn
sjófisk þeirra tegunda, sem hér verða
taldar, sem ekki nær þvi máli, sem tekið
er fram við hverja tegund.
Lýsa e. Whiting, niu og hálfur þuml.
á lengd.
Pykkvalúra e. Lemon-soles, níu þuml.
á lengd.
Langlúra e. Witches, níu þuml. á lengd.
Stórkjafta e. Megrims, níu þuml. á lengd.
Lengdarmál þessi skal taka frá snjáldri,
að afturrönd sporðsugga, er fisknr liggur
flatur.
Þessi tilskipun stendur sem fiskveiða-
samþykkt fyrir árið 1934.
Tilskipun þessi gengur í gildi, hinn
1. dag maímánaðar 1934.
Maður drukknar.
1 ofviðrinu 13. apríl s. 1. skolaði manni
útbyrðis af mótorbátnum »Þorkell máni«
frá Ólafsfirði, er ólag reið yfir bátinn.
Maður þessí hét Jósep Sveinsson, ætt-
aður úr Glerárþorpi. Hann var ungur
að aldri og ókvæntur.