Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.1934, Side 20

Ægir - 01.05.1934, Side 20
126 ÆGIR báðum árunum, verður sú sala 4 — 5 miljónir kíló, mest saltfiskur, þorskur og ýsa. 1 Svisslandi hefur mikið selst af frosn- um flökum, eins og að undanförnu. V« af aflanum var seldur á heima- markaði til neyzlu í Danmörk. Sex sjöundu parta af hinu útflutta, um 42 miljónir kíló, keyptu Englend- ingar og Þjóðverjar, likt og þeir gerðu 1932. — Á ellefu mánuðum keyptu Eng- lendingar 18,9 miljónir kíló og F*jóð- verjar 15,8 móts við 16,1 og 19,4 miljónir kíló á sama tíma 1932. Freðfiskur. Maður, sem haft hefur með höndum, bæði harðfisks- og freðfisksverkun, hefur gefið eftirfylgjandi upplýsingar um það, hvernig verka megi freðfisk í frostleysum sé snjór við hendina, og er hans aðferð þessi: Stór bali er hálf-fylltur af sjó og síðan mokað í hann snjó, þar til allt er orðið að þykku krapi. Síðan er salt látið í balann og hinn flatti fiskur, sem herða á, látinn f þennan lög, sem er mátulegur (þ. e. saltið hæfilegt) þegar fiskur, sem í hon- um hefur legið í 4—5 mínútur, er gegn- freðinn. Pegar fiskurinn er tekinn upp úr leg- inum, er honum dyfið í hreint vatn, til að skola salthúðina af honum. Gæta verður þess vel, að bæta snjó í balann eftir þvi, sem hann bráðnar. Úr 5 punda fiski með haus og hala fæst 1 pund af harðfiski, sem mun kosta um 65 aura — hér nærlendis — kiló af sama fiski upp úr sjó, eru 6 aurar, og 5 punda fiskur því 15 aurar. Auk þess fær sá sem berðir, bein, lifur og haus i kaupbæti, og það eru einnig peningar. Fiskveiðar Norðmanna við ísland. I vikunni 6.—13. maí sl. lögðu 8 gufu- skip, 527 tonn af þorski á land í Noregi; fluttu þau þetta frá íslandsmiðum. Verðið var 23 V2 eyrir pr. kiló, og allur aflinn samtals 123,845 króna virði. í sömu viku 1933, var aflinn meiri. Þá var lagt á land í Álasundi 999 tonn af þorski, sem jafngilti 208,270 krónum. Alls hafa 31 skip flutt til Noregs þessa vertið, 2,525 tonn af norsk-veiddum íslands-fiski, og fyrir hann fengust 592,- 375 krónur. Verðið hefur verið hið sama allan veiðitímann, 23Vs eyrir hvert kíló. Á vertíðinni í fyrra fluttu 33 skip heim, 2,579 tonn af þorski, sem veiddur var við ísland; var hann seldur fyrir 548,665 krónur. Síldveiðar Dana. Eins og síðastliðið ár ætla Danir að gera út skip til síldveiða í sumar, undir forustu A. Godtfredsens. Skipið heitir »Merkur« frá Esbjerg og ber það 1200 tons; verða á því 26 fiski- menn frá Nyborg, Korsör og Kerteminde. Eftir því sem veiðist, er ætlunin að leggja síldina á land hér, og senda til útlanda með áætlunar-skipunum, en flytja það út með »Merkur«, sem eftir verður af aflanum hér í september, þegar veiðar hætta. í lok júnímánaðar verður salt, krydd, kol og matvæli látið í skipið, sem siðan fer til Haugesunds og tekur þar tómar síldartunnur. Búist er við, að það verði komið til Islands um 1. júlí. Færeyingar og Grænland. 1 Danmörku er altalað, að Færeyingar fái aðgang að annari höfn á Grænlandi auk Færeyingahafnar fyrir sunnan Godthaab. Höfn sú, sem umræðir, verður annað- hvort fyrir austan »Spönsku-eyju (Spa-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.