Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1950, Blaðsíða 8

Ægir - 01.01.1950, Blaðsíða 8
2 Æ G I R Þá er að víkja að öðru meginatriðinu i sambandi við saltfiskverkun, en það er í því fólgið, hvort við eigum að lúta því að flytja saltfiskinn út sem hálfunna vöru og veita þar með öðrum þjóðum tækifæri, að einhverju leyti, til þess að fullverka hann, eða hvort við eigum að gera það sjálfir og auka þar með gjaldeyristekjur okkar með sölu á vinnu. Aðferð sú, sem fram til þessa hefur að jnestu leyti verið notuð hér við að full- verka saltfisk, er svo frumstæð og dýr, að ætla má, að ekki verði viðlit að notast \dð hana framvegis. Og þá vaknar sú spurning, á hven liátt við getum framleitt fullverk- aðan saltfisk, er sé samkeppnisfær um verð við aðra saltfiskframleiðendur. Gamla sólþurrkunin kemur ekki til greina, miðað við núgildandi vinnulaun, og þá liggur næst fyrir að athuga, hvort tækilegt sé að framleiða mikið magn af saltfiski í þurrk- húsum á borð við þau, er hér hafa tíðkazt. Ber í þvi sambandi senn að hafa í huga framleiðslugetuna og framleiðslukostnað- inn. Loks er sjálfsagt að athuga, hvort nýjar aðferðir koma eigi til greina við fiskþurrkun og forverkun fisksins áður en liann er þurrkaður. Ætli íslendingar að gernýta fiskiflota sinn yfir aðalþorskfiskvertiðina, verða þeir á nýjan leik að hverfa að saltfiskverkun i stórum stíl. En til þess að svo geti orðið, er óumflýjanlegt að koma upp viðunandi fiskgeymsluhúsum. Ætli íslendingar sér ekki að flytja saltfiskinn út hálfunninn, verða þeir að skapa skilyrði í landinu til l'ullverkunar á honum. Og ætli íslendingar sér að verða samkeppnisfærir um verð á þessari framleiðslu, er óumflýjanlegt, að þeir liætti við aldagamlar vinnuaðferðir og tak upp nýjar, sem séu hraðvirkari og ódýrari. Allt eru þetta umhugsunarefni, sem vert er að sinna hið fyrsta, þvi að öðrum kosti kynni svo að fara, að íslend- ingar létu öðrum eftir ákjósanlega mark- aði, og á því hafa þeir engin ráð. Allir, sem fylgzt hafa með fiskfram- leiðslu Norðmanna undanfarandi ár, vita, Lausn til bráðabirgáa. Þegar er Alþingi kom saman eftir ára- jnótin, tók það að fjalla um ráðstafanir vegna útgerðar bátaflotans á yfirstandandi vertíð. Vegna of stutts undirbúningstíma talai rikisstjórnin sér ekki fært að svo slöddu að leggja fram tillögur um fram- búðarlausn á erfiðleikum bátaútvegsins, og yrði því i bili að taka ábyrgð á afurðum bátaútvegsins og hraðfrystihúsanna. Full- trúar útvegsmanna höfðu lagt fram álits- gerð um það, að útgerðin þyrfti að fá kr. 1.04 pr. kg fyrir slægðan fisk með haus, en i frumvarpi rikisstjórnarinnar var gert ráð fyrir 75 aurum, og var það samþykkt. Abyrgðarverðið til frystihúsanna fyrir hraðfrystan fisk var hækkað úr kr. 1.33 pr. Ibs. i kr. 1.53 miðað við 7 punda pökkun. Abyrgðarverð á saltfiski var hækkað úr kr. 2.25 i kr. 2.52, miðað við fullsaltaðan 1. flokks stórfisk. Þá var ríkisstjórninni lieimilað að ábyrgjast kr. 1.30 fyrir lifrar- Htrann. Verð fyrir hinar ýinsu fiskteg- undir er nokkuð misinunandi, og má lesa um það síðast í þessu blaði. — Ákvæði þau um fiskábyrgðina, sem hér eru greind, gilda til 1. marz, en framlengjast til 15. maí, ef ekki liafa verið gcrðar aðrar ráð- stafanir fyrir 1. marz. að þeir hafa lagt ríka áherzlu á að koma sér sem bezt fyrir á saltfiskmarkaðinum og tekizt það inæta vel, enda hafa þeir mætt þar lítilli samkeppni. Undanfarið höfum við ekki framleitt meira magn af saltfiski en svo, að við höfum auðveldlega getað losnað við það. En þegar að því kemur, að við þurfum að auka þessa fram- leiðslu til muna, þá reynir á, hversu við stöndumst samkeppni Norðmanna og ann- arra saJtfiskframleiðsluþjóða. L. K.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.