Ægir - 01.01.1950, Blaðsíða 16
10
Æ G I R
því 1901. Telur fiskiþingið að slefna beri
að því að fá landgrunnið viðurkennt sem
íslenzka landhelgi. Skorar fiskiþingið á Al-
þingi að ákveða eins fljótt og frekast þykir
fært sem mesta rýmkun landhelginnar og
sérstaklega að allir flóar og firðir landsins
skuli vera innan landhelgi, þar með talinn
Norðurflóinn frá Horni að Melrakkasléttu.
Telur fiskiþingið rýmkun landhelginnar
lífsnauðsyn til þess að hindra eyðileggingu
fiskimiðanna og þann voða, sem af því
leiddi fyrir landsmenn.“
Samræming fargjalda.
„Fiskiþing skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að gera nú þegar ráðstafanir til að
útsöluverð á allri íslenzkri vöru, svo sem:
olíum, benzini, veiðarfærum og allri ann-
arri nauðsynjavöru, verði hið sama hvar
sem er á landinu."
Vitamál.
„Fiskiþingið skorar á vitanefnd að taka
til athugunar byggingu eftirtalinna vita,
ljósmerkja og innsiglingarmerkja, og mæla
með byggingu þeirra, eftir því sem ástæð-
ur leyfa:
1. Að reistur verði viti á Hafnarnesi við
Þorlákshöfn.
2. Að ljósmagn Knararóssvitans verði
aukið frá því sem nú er.
3. Að raftaug verði lögð það bráðasta
frá endastöð rafveitu Vestmannaeyja
að Stórhöfðavita.
4. Að radiovita verði komið upp á Dala-
tanga ásamt stefnuvita á Langanesi.
ö. Að reistur verði innsiglingarviti við
Norðfjörð.
6. Að viti verði reistur á Seley.
7. Að reistur verði innsiglingarviti á
Landatanga við Stöðvarfjörð og einn-
ig' verði sett þar upp hljóðdufl.
8. Að reistur verði viti á Hvalnesi við
Eystrahorn.
9. Að leiðarmerki verði sett upp við inn-
siglinguna á Papós og þannig útbúin,
að hægt verði að setja i þau ljós, ef
með þarf.
10. Að innsigling á Djúpavog verði auð-
kennd moð 2 Ijósduflum.
11. Að ljósmagn Hvanneyjarvitans verði
aidvið.
12. Að aftur verði reistur innsiglingarviti
við Hornafjarðarós og að lýst verði
leiðin milli Eystraskers og Borgeyjar-
boða.
13. Að ljósmagn Brimnesvitans við Scyðis-
fjörð verði aukið.
14. Að sett séu gleggri innsiglingarmerki
á Raufarhöfn.
15. Að byggður verði viti á Hrólfsskeri við
Eyjafjörð.
16. Að byggður verði viti að Lundey við
Skjálfanda.
17. Að aukið verði ljósmagn Hríseyjar-
vitans.
18. Að byggður verði radioviti á Sléttanesi.
19. Að aukið verði ljósmagn vitanna á
Vestfjörðum.
20. Að vitinn, sem ákveðinn hefur verið
á Rifi á Snæfellsnesi, verði reistur á
sumri komanda.
21. Að góð Ijósdufl verði selt á Vestur-
boða í Grundarfirði og Þrælaboða við
Búlandshöfða.
I'iskiþing skorar á vitamálastjóra að
hlutast til um, að eflirleiðis verði ábúandi
á Öndverðarnesi.
Fiskiþingið vítir formann Vitanefndar
fyrir, að ekki hefur verið haldinn fundur
í Vitanefnd á þessu ári og skorar á hann,
að kalla saman nefndina nú þegar, svo að
hún geti tekið upp störf, sem henni ber að
rækja.“
Bygging fiski- og
fiskiðnrannsóknarstöðvar.
„Fiskiþingið telur brýna nauðsyn á, að
sem fyrst verði sköpuð viðunanleg skil-
yrði fjTÍr rannsóknir á sviði sjávarútvegs-
ins. Skorar þingið í því sambandi á við-
komandi stjórnarvöld að greiða fyrir því,
að bygging sú, sem ætlað er að reist verði
íyrir rannsóknir þessar, komist upp sem
fyrst.“