Ægir - 15.01.1963, Page 23
ÆGIR
17
Fiskveiðar árið 2000
Eftir Donald L. McKernan og Donald R. Johnson
Niourlag.
Við megum búast við því, að árið 200
verði þekking okkar á erfðafræði, lífeðlis-
fræði og næringu fiska og skeldýra orðin
svo víðtæk, að við getum ræktað ostrur, kú-
fisk og ef til vill rækju með skipulögðum
aðferðum. Sólarljós og fæðumagn verður
nákvæmlega skammtað, og sennilega verða
hraðvaxnari og kröftugri dýrin kynbætt,
svo að afkvæmi þeirra fái sem æskilegasta
eiginleika, svo sem fallegan lit, gott bragð
og viðnám gegn sjúkdómum. Þessi af-
kvæmi eru síðan ræktuð í þróm, sem þann-
ig eru útbúnar, að öll ytri skilyrði til
þroska eru eins hagkvæm og frekast verð-
ur á kosið. Venjulegur sjór verður ýmist
hitaður eða kældur eftir því sem bezt
hentar á hverjum árstíma. Efnasambönd
og sporefni verða notuð til að draga úr
sjúkdómum, fækka ránfiskum og auka
vaxtarhraða. Næringin verður annað
hvort lifandi fæða, ræktuð sérstaklega í
þeim tilgangi, eða gervifæða, unnin úr
eggjahvítu og kolvetnum, auk ólífrænna
efnasambanda, sem örva vöxtinn. 1 Banda-
ríkjunum hefur markaðshæfur kúfiskur
þegar verið ræktaður í rannsóknarstofum.
Svipaðar tilraunir hafa einnig verið
hafnar á laxi og silungi, og kemur í ljós
eftir nokkur ár, hvernig þær takast.
Skipstjórar stjórna veiðum frá mælaborði í stjórn-
klefa.
Árið 2000 verða bæði beinar og óbeinar
aðferðir við að finna fisk orðnar miklu
fullkomnari. Hægt verður að velja úr ótal
upplýsingum um hvert eigi að fara
hvaða ytri skilyrði séu hagkvæmust og
hve miklu fiskmagni megi búast við. Þeg-
ar skipið er komið á miðin, er hljóðgeisl-
um beint niður í sjóinn í mismunandi fjar-
lægð frá skipinu, þar sem auðvitað er
fiskur af ýmsu tagi, og sýna þá sérstök
tæki stærð og staðsetningu fiskitorfanna
á nokkurra fermílna svæði.
Fiskiskip aldamótaársins 2000 verða að
miklu leyti sjálfvirk, með aðeins fárra
manna áhöfn. Eiginlega er þar aðeins um
að ræða smábáta, sem leggja fiskinn upp
í móðurskip þar sem vinnsla hans fer
fram. Sjómennirnir snerta aldrei aflann,
og öllum aðgerðum er stjórnað úr brúnni,
þar sem skipstjórinn og fiskikapteinninn
segja fyrir verkum.
Þá koma til sögunnar neðansjávartogar-
ar, sem leita uppi og elta fiskitorfur, geta
stundað veiðar hvernig sem viðrar, og
togað án þess að hlé verði á milli. Notkun
á föstum fiskigildrum við strendurnar,
og jafnvel úti á opnu hafi, færist í vöxt.
Flestar þessar gildrur eru þannig útbún-
ar, að þær geta valið fiskinn úr eftir stærð
Fjarstýrðir neðansjávartogarar geta veitt i hvaða
veðri, sem er.