Ægir - 01.10.1965, Side 3
Æ u I R
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
58. árg. Reykjavík 1. okt. 1965 Nr. 17
Útgerð og aflabrögð
SlLDVEIÐARNAR
norðcinlands og austan
11. sept. Alls tilkynntu 17 skip um veiði
s.l. sólarhring, alls 20.478 mál og tu. Síld-
in veiddist 38—50 sjóm. SSV af Jan May-
en. Þar var gott veður.
12. sept. S.l. sólarhring var veiðisvæðið
suður af Jan Mayen og 50—100 sjóm. NA
af Langanesi. Sólarhringsafli 45 skipa var
55.830 mál og tu.
13. sept. Sæmilegt veiðiveður var á mið-
unum úti af Langanesi s.l. sólarhring. Það-
an tilkynntu 45 skip um afla alls 48.311
uiál og tu.
1U. sept. Síldarleitinni var tilkynnt um
afla 21 skips með samtals 21.318 mál og
tu. Sæmilegt veður var á miðunum, sem
voru 70—100 sjóm. NA af A frá Langa-
nesi.
15. sept. Sólarhringsafli 26 skipa var
31.410 mál og tu. Veiðisvæðin voru 30—90
sjóm. í A frá Langanesi og 70—120 sjóm.
NA af A frá Raufarhöfn. Gott veður var
á þessum slóðum.
16. sept. S.l. sólarhring tilkynntu 40 skip
um afla samtals 29.080 mál og tu. Síldin
veiddist 100—120 sjóm. NA af A frá Rauf-
arhöfn. Sæmilegt veður var framan af
degi en byrjað var að bræla er leið á
kvöldið.
17. sept. Veiðisvæðið hefur nú færst nær
landi. Skipin voru aðallega að veiðum 60
—80 sjóm. NA af A frá Raufarhöfn. Slæmt
veiðiveður var fyrrihluta dags en fór að
lygna upp úr hádeginu. Fá skip voru á þess-
um slóðum. Sólarhringsaflinn nam 28.500
mál og tu. hjá 28 skipum.
18. sept. NA gola var á miðunum s.l.
sólarhring, og veiði léleg. Skipin voru að
veiðum 10—15 sjóm. NA af Digranesflaki
og einnig fengu nokkur skip slatta 60 sjóm.
A af S frá Glettingsnesi. Sólarhringsafl-
inn var 10.990 mál hjá 24 skipum.
19. sept. Alls fengu 33 skip 11.900 mál
og tu. s.l. sólarhring. Veiðisvæðið var 60
sjóm. A af S frá Langanesi. Einnig var
nokkur veiði í Reyðarfjarðardýpi. Veður
var gott en nokkur straumur.
20. sept. Alls tilkynntu 69 skip um veiði
s.l. sólarhring, samt. 59.390 mál og tu.
Fyrri hluta dags var góð veiði í Norð-
fjarðardýpi og Gerpisflaki 36—42 sjóm.
undan landi. Upp úr hádegi fór að bræla
SA og gerði slæmt veður.
21. sept. Sólarhringsafli 48 skipa var
34.800 mál, sem veiddust á sömu slóðum
og daginn áður. Mikill sjór og versnandi
veður er leið á kvöldið.
22. sept. Síldarleitinni var tilkynnt um
afla 35 skipa með samt. 18.000 mál og tu.
Síldin veiddist í Norðfjarðardýpi, Gerpis-
flaki og Reyðarfjarðardýpi. Fremur óhag-
stætt veður var á miðunum.
23. sept. Mjög góð síldveiði var s.l. sólar-
hring. 74 skip fengu 95.914 mál og tu. s.l.
sólarhring og er það mesti sólarhrings-
afli, sem af er vertíðinni. Mjög gott veiði-