Ægir - 01.10.1965, Síða 18
284
ÆGIR
undirstöðurannsókna í landinu. Ráðið skal
hafa náið samstarf við hinar ýmsu rannsókna-
stofnanir. Það skal hafa sem gleggsta yfirsýn
yfir alla rannsóknastarfsemi í landinu og gera
tillögur til úrbóta, ef það telur rannsókna-
starfsemina ófullnægjandi, rannsóknaskilyrði
ófullkomin eða markverð rannsóknaverkefni
vanrækt.
2. Athuganir á nýtingu náttúruauðæfa landsins
til nýrra atvinnuvega og atvinnugreina, enda
skulu allar tillögur um nýjungar á sviði at-
vinnuvega og atvinnugreina, sem berast ríkis-
valdinu, sendar ráðinu, og skal það beita sér
fyrir því, að fram fari tæknileg og þjóðhags-
leg athugun þeirra, ef það telur þess þörf.
3. Gera tillögur um framlög ríkisins til rann-
sóknamála og fylgjast með ráðstöfun opin-
berra fjárframlaga til þeirra rannsóknastofn-
ana, sem lög þessi ná til.
4. Öflun fjármagns til rannsóknagtarfseminnar
almennt til viðbótar framlagi ríkisins og til-
lögugerð um skiptingu þess á milli rannsókna-
stofnana og rannsóknaverkefna.
5. Að hafa í sínum vörzlum skýrslur um rann-
sóknir á sviði raunvísinda, sem kostaðar eru
af opinberu fé, og hlutast til um, að niður-
stöður séu kynntar. Rannsóknaráð semur ár-
lega skýrslu um rannsóknastarfsemina í land-
inu.
6. Að stuðla að söfnun erlendra rita og annarra
upplýsingar um vísindastörf, rannsóknastörf
og tækni og úrvinnslu þeirra til hagnýtingar
fyrir atvinnuvegi landsins. Upplýsingum þess-
um skal komið á framfæri við rannsókna-
stofnanir.
7. Að beita sér fyrir skjótri hagnýtingu tækni-
legra nýjunga hjá atvinnuvegunum með kynn-
ingastarfsemi og upplýsingaþjónustu.
8. Samstarf við hliðstæðar erlendar stofnanir og
að stuðla að þátttöku fslands í alþjóðlegu sam-
starfi á sviði rannsóknamála.
9. Önnur þau verkefni, sem æskilegt reynist að
sameina fyrir rannsóknastarfsemina.
Hafrannsóknastofnunin.
10. gi'.
Hafrannsóknastofnunin er sjálfstæð ríkisstofn-
un, sem heyrir undir sjávarútvegsmálaráðu-
neytið.
11. gr.
f stjórn Hafrannsóknastofunarinnar skulu
vera þrír menn, skipaðir af sjávaiútvegsmála-
ráðherra til fjögurra ára í senn, þar af einn án
tilnefningar, einn tilnefndur af stjórn Fiskifé-
lags íslands og einn tilnefndur af ráðgjafamefnd
stofnunarinnar. Sömu aðilar tilnefna varamenn.
Ráðherra skipar formann stjórnarinnar og ákveð-
ur stjórnarlaun.
12' gr'
Stjói'nin hefur á hendi yfirstjórn rannsoKn
stofnunarinnar og samþykkir starfsáætlun
fjárhagsáætlun hennar fyrir eitt ár í senn. Fjai"
hagsáætlun skal senda ráðherra til staðfestinga1 •
13. gr.
Sjávarútvegsmálaráðherra skipar forstjóra °£
sérfræðinga við Hafrannsóknastofnunina a°
fengnum tillögum stjórnarinnar. Forstjóri ska
hafa lokið háskólaprófi í raunvísindum og veia
sérfróður um hafrannsóknir. Forstjóri stofnun-
arinnar í-æður annað starfslið hennar.
14. gr.
Forstjóri hefur á hendi daglega stjórn rann-
sóknastofnunarinnar og umsjón með rekstri henn-
ar. Hann ákveður starfssvið sérfræðinga og ann-
ars starfsliðs.
15. gr.
Við -Hafrannsóknastofnunina er ráðgjafar,
nefnd. Skulu eftirtaldir aðilar tilnefna fultrúa 1
nefndina til fjögurra ára í senn:
Landssamband ísl. útvegsmanna tvo menn.
Fiskifélag Islands einn mann.
Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda einn mann.
Fiskimannadeild Farmanna- og fiskimanna-
sambands Islands einn mann.
Alþýðusamband Islands einn mann.
Sjómannasamband íslands einn mann.
Forstjóri stofnunarinnar á sæti í nefndinnn
Nefndin kýs sér formann.
Ráðgjafamefnd fylgist með rekstri stofnunar-
innar og er tengiliður milli hennar og sjávarút-
vegsins. Nefndin er forstjóra og stjórn til ráðu-
neytis og gerir tillögur um starfsáætlun stofnun-
arinnar. Nefndin er ólaunuð.
Sjávaiútvegsmálaráðuneytið getur með sani-
þykki stjórnarinnar fjölgað mönnum í ráðgjafa1"
nefnd og setur reglur um, hvernig vali nefndai-
manna skuli hagað.
16. gr.
Hafrannsóknastofnunin skal hafa yfirstjo1
fiskirannsóknaskipa, sem eru í eigu ríkisins.
Verkefni Hafrannsóknastofnunarinnar skulu
meðal annars vera:
1. Rannsóknir á gögnum og stofnsveiflum lS"
lenzkra sjávardýra og áhrifum þeirra á afl®
magn, veiðihorfur og hámarksnýtingu. E1111
fremur rannsóknir á dýrastofnum og öðrum
sjávarverðmætum, sem ónytjuð eru, í því skyu1
að auka fjölbreytni sjávarútvegsins.