Ægir - 15.06.1972, Page 5
ÆGIR
203
Veírar ver tí ðin 1972
Þorskafli á vetrarvertíðinni olli mönnum
allmiklum vonbrigðum. Þrátt fyrir mikla
og vaxandi sókn bátaflotans, varð afli hans
nokkru minni en á vertíðinni 1971 og
langtum minni en á vertíðinni 1970, er
hann nam 247 þús. lestum. Afli togara-
flotans hefur og dregizt saman, eins og
meðfylgjandi tafla um heildaraflann ber
með sér. Samt fækkaði togurunum ekki,
heldur var um minnkandi afla á sóknar-
einingu að ræða.
Orsakir minni fiskgengdar virðast eink-
um þær, að árgangar af íslenzkum stofni
virðast vera veikari en ráð var fyrir gert,
einkum árgangurinn frá 1964. Þá virðist
tekið fyrir fiskgöngur frá Grænlandi a.
k. í bili. Er ekki að vænta breytinga til
hins betra frá þeirri fiskislóð, því að engir
vænlegir þorskárgangar hafa bætzt græn-
lenzka fiskstofninum síðan 1961 og 1963.
Þá má nefna sem orsök lakari afla-
hragða á vertíðinni, að fiskurinn breytti
ut af venju undanfarinna 3—4 ára og safn-
aðist á miðin við Breiðafjörð. Var Suður-
nesjamönnum mörgum, svo og Vestmanna-
eyingum og öðrum Sunnlendingum, óhægt
um vik að sækja það langt.
1972 1971
1/1-15/5 1/1-15/5
Lestir Lestir
Hornafjörður 6.690 6.984 4.2%
Vestmannaey j ai r 22.380 23.447 4.6%
Stokkseyri 1.800 3.316 -45.7%
Hyrarbakki 1.606 1.860 -13.7%
eorlákshöfn 13.329 17.803 -25.1%
Grindavík 28.610 39.591 -27.7%
Sandgerði 11.847 13.194 -10.2%
Keflavík 19.157 14.200 +34.5%
Vogar 1.316 2.186 -39.8%
Hafnarfjörður 3.243 1.747 + 86.0%
Keykjavík 8.784 4.942 + 77.7%
•ákranes 6.756 7.842 -13.8%
Rif 6.876 4.915 +39,9%
Olafsvík 12.182 8.165 +49.2%
Gi-undarfjörður 3.949 2.636 + 49.8%
Stykkishólmur 1.938 831 + 133.2%
Aflabrögð voru því allmisjöfn eftir ver-
stöðvum s. 1. tvö ár, eins og meðfylgjandi
yfirlit um landað aflamagn á svæðinu
Hornafjörður—Stykkishólmur ber með
sér.
Um aðrar veiðar en þorskveiðarnar þarf
ekki að fjölyrða. Vísast í þess stað til með-
fylgjandi yfirlits um heildarafla.
Heildaraflinn 1/1—31/5 1972 og 1971.
(Bráðabirgðatölur Ægis)
1. ÞORSKAFLI:
Bátaafli 1972 1971 Breyting
Lestir Lestir
Hornafj./Stykkish. 153.903 161.259 H- 4,6%
Vestfirðir 21.361 24.074 H-11,2%
Norðurland 12.948 17.804 H-27,2%
Austfirðir 15.534 13.983 +11,2%
Landað erlendis 1.234 847 +46,0%
Samtals 204.980 217.967 -r- 6,0%
TOGARAAFLI:
Landað innanlands 19.372 19.992 -j- 3.0%
Landað erlendis 7.655 6.244 +22.5%
Samtals 27.027 26.236 + 3.0%
SAMTALS
ÞORSKAFLI: 232.007 244.203 r- 5.0%
2. SÍLDARAFLI
Landað innanlands 118 955 H-87.6%
Landað erlendis 385 3.575 H-89.2%
Samtals 503 4.530 -r-88.9%
3. LOÐNUAFLI: 277.655 182.000 +52.5%
4. RÆKJUAFLI: 2.542 3.275 -f-22.3%
5. HÖRPUDISKUR: 908 1.158 -4-21.5%
6. HUMARAFLI: 504 547 -4- 7.8%
HEILDARAFLINN: 514.119 435.713 + 18.0%
Loðnuveiðarnar gengu mjög vel að þessu
sinni. Sökum ágreinings um verð, hættu
verksmiðjurnar að taka á móti loðnu,
nokkru áður en hún hvarf af miðunum.