Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.06.1972, Qupperneq 18

Ægir - 15.06.1972, Qupperneq 18
216 Æ GIR NETAGERÐ OG NETABÆTING 3. grein. I síðasta þætti var þar komið vinnunni, að við vorum að búa okkur undir að byrja að ríða undirvængina út frá belgnum. Við drögum snærið, sem fyrsta umferð belgs- ins hafði verið þrædd uppá, úr möskvan- um. Næst er svo að koma belgnetinu þann- ig fyrir að við getum riðið fyrstu umferð vængsins við tvöföldu umferðina, sem belgurinn hófst á. Við annan enda þess- arar umferðar er spotti af tvöföldum tvinna, sem varð eftir, þegar við byrjuðum og brugðum fyrsta skutulsbragðinu á hinni tvöföldu umferð belgsins. Nú færðu þér nál með einföldum tvinna og bindur endann við tvöfalda spottann og byrjar síðan að ríða í öfuga átt. Ef við lítum á myndina af botnvörpunni, neðri ldutanum, þá sjáum við að þar er gert ráð fyrir 45 möskvum yfir vængstykkið. Við teljum því samvizkusamlega um leið og við ríðum. Þegar við höfum riðið 45 möskva byrjum við á annarri umferð en búum ekki til kantmöskva þarna, heldur aðeins venjulegan möskva og hliðar þessa möskva verða allar sléttar og lmútlausar. Þetta er nefnilega fyrsti flámöskvinn. Á flestum vörpum eru flámöskvarnir búnir til með tvöföldum tvinna, vegna þess að það mæðir mikið á þessum möskvum. Þar sem þetta er létt varpa, þá látum við okkur nægja að búa þá til með einföldum tvinna. Þegar þið hafið lokið annarri umferð, þá búið þið til kantmöskva við lok hennar hinum megin. Næst byrjum við svo á þriðju umferðinni og nú tökum við til við nýtt atriði, nefnilega það að auka í. AÐ AUKA 1 (CREASING) Þegar við aukum möskvum í umferð, eða bætum möskva við annan enda umferðar, þá er notað orðatiltækið „að auka í“ og það verður hér eftir notað. ,,Að auka í“ er víða gert í vörpunni, og ekki aðeins við kantana eða í lok umferðar heldur getur það orðið víðar, en við munum samt ekki auka í nema við kantana. Að auka í er gagn- stæð athöfn við að fella úr. Ef við erum að ríða í átt að pokanum á vörpunni fell- um við úr til að fá fram netlögunina, en ef við ríðum í átt frá pokanum, náum við sama árangri með því að auka í. Undii*vængina verður að ríða í átt frá pokanum og til þess, að ná réttri af- stöðu til belgsins verðum við að auka í möskva í þriðju hverri umferð á ytri kant- inum, eða þeim megin, sem við hnýtum kantmöskvana. Við höfum tekið eftir því, að vængirnir verða að fylgja línunum í meginhlutum vörpunnar og þess vegna verður aukningin á ytri kantinum og í byrjun umferðar. Þú byrjar því umferðina á því að hnýta kant- hnútinn og kantmöskvann og út frá þeim sama möskva og sama hnút býrðu til lykkju, og hnýtir annan hnút, þannig að það lenda tveir hnútar í sama möskvanum. Síðan ríðurðu áfram yfir þar til þú hefur riðað 45ta möskvann. Það er síðasti möskv- inn í umferðinni, því að næsti möskvi er kvartmöskvinn á belgnum, sem síðar verð- ur vikið betur að. Nú byrjarðu næstu umferð með því að búa til flámöskvann, sem áður er nefndur. Ljúktu síðan við umferðina, og þegar þú kemur að kantinum, þá haltu áfram til næstu umferðar, því að þú verður að muna það, að þetta er þriðja umferðin við kant- inn og byrjaðu því með því að auka möskva í, eins og sagt var hér að framan, að gera þyrfti við þriðju hverja umferð. Við lok þriðju umferðarinnar býrðu ekki til möskva í flámöskvann, heldur lætur hann

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.