Ægir

Árgangur

Ægir - 15.06.1972, Síða 21

Ægir - 15.06.1972, Síða 21
ÆGÍIR um verður alltaf lítið eitt lengri en ytri kanturinn og þannig fæst sjálfkrafa slaki í netið, sem nauðsynlegur er, þegar það ei’ fest á bolslínurnar. Lengd undirvængjanna hvors um sig þarf að vera 20 fet á þeirri vörpu, sem hér um ræðir, en það er lengd yfirvængjanna (14 ft. 6 þumlungar) og skversins (5 ft. og 6 þml.). Skverinn kemur eins og við mun- um, langt framyfir undirbyrði belgsins til aS varna því að fiskur komist undan með Því að leita upp frá fótreipinu. Vegna þessarar umframlengdar skversins verða yfirvængirnir skiljanlega styttri en undir- vængirnir. Þegar undirvængirnir hafa verið riðnir við undirbyrði belgsins eiga að vera 30 möskvar á milli þeirra. Þessir 30 möskvar ei'u nefndir belgbússummöskvar og möskv- arnir sitt við hvorn enda belgbússumöskv- anna er kallaðir kvartmöskvar. Sömu heiti eru notuð við hliðstæða parta á yfirbyrði vörpunnar, það er, þar sem vængirnir leugjast skvernum og enda möskvana í köfuðlínubússuminu á milli vængjanna. Kvartmöskvarnir eru mikilsverðustu möskvarnir í allri gerð vörpunnar og því skylduð þið athuga þá á teikningunni. Fyrir þá, sem ekki eru kunnugir bygg- mgu vörpu, getur það verið óljóst, hvernig undirvængirnir liggja, þegar varpan er dregin. Vængirnir liggja í drættinum uokkurn veginn lóðrétt allt að vængend- unum, þar sem endabreiddin í okkar til- viki, er hinir 20 möskvar festir á 3 feta hnu, en þag yrði þa hæð höfuðlínunnar í sjálfum vængendanum. Síðar munum við syna, hvernig ytri kantur undirvængsins ei‘ leisaður við ytri kant yfirvængsins og þeir þurfa því að vera sem jafnastir að lengd. yfirvængirnir Við fjöllum nú um yfirvængina og það sest glöggt af teikningunni að þeir eru olikir undirvængjunum að tvennu leyti. Þeir eru 50 möskva breiðir, þar sem tengjast skvernum og bússumið er 219 einnig 50 möskva breitt og þvert yfir verða þetta því 150 möskvar eða 30 möskv- um meira en í samanlögðum undirhluta vörpunnar. I öðru lagi enda yfirvængirnir ekki 20 möskva breiðir heldur 2ja möskva breiðir. Af þessu leiðir, að við verðum að fella úr 48 möskva á innri köntum vængjanna en auka í eins og í undirvængjunum í þriðju hverri umferð til að halda lögun vörpunnar. Jafnframt því, sem við gerum þetta, verðum við að hafa í huga að yfir- vængirnir eru aðeins 14 fet og 6 þumlung- ar á lengd en undirvængirnir 20 fet. Hina öru mjókkun yfirvængjanna fram, fáum við vitaskuld með úrfellingu á innra kanti þeirra eða höfuðlínukantinum. Til þess að vera viss um, að þetta gerist rétt, verðum við að áætla úrtökufjöldann strax í byrjun. Við notum þá formúlu að 12 umferðir séu 11/2 fet, með öðrum orðum að fetið sé átta umferðir. Þetta á náttúrlega einungis við 70 mm umferðir. Auk þessa er svo gert ráð fyrir tvö- földu aukaumferðinni við endann. Hver vængur er sem sagt 1414 fet á lengd mælt á yfirkantinn, svo reiknum við dæmið með því að margfalda 14^ fet með 8 og fáum þá 116 umferðir. Síðan þurfum við að auka í við þriðju hverja umferð á ytri kantinum, og í dæminu okkar bætum við því eínum þriöja af 116, sem verður 38+2 við á ytri kantinum, sem þýðir þá, að við verðum að fella úr 88 möskva á innri kantinum. Við gerum það með því að fella úr í annarri hvorri umferð og það þýðir 58 möskva úrfellingu alls, en viðbótarúr- fellinguna fáum við með því að fella einn möskva að auki úr í fjóröu hverri umferð, og það gerir alls 29 möskva úrfellingu og samtals höfum þá fellt úr 87 möskva. Ef þessum leiðbeiningum er fylgt út í æsar, verður lengd yfirvængsins 14 fet og 6þumlungar.Þaðmá ekki bæta aukamöskv- um við lengd yfirvængsins; allar nauðsyn- legar breytingar til að jafna vængina verða að gerast á neðri vængjunum.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.