Ægir - 01.02.1974, Page 5
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
6 7. ÁRG. 2. TBL. 1. FEBR. 1974
Sjávarútvegurinn 1973
Nokhrir forustutnenn í sjávarútvegi og fiskiðn-
aði gefa í þcssu og ntestu blöðuni stutt gfirlit gfir
árið sent leið og rteða ástand og horfur
FNISYFIRLIT:
Sjávarútvegurinn 1973,
greinaflokkur:
Valdimar Iivdriðason:
Togaraútg’erðin 1973 21
Jónas Jónsson:
Fiskmjölsframleiðslan
1973 24
•
Nokkur atriði um loðnu
og loðnuframleiðslu í
Kanada og Nýfundna-
landi 26
•
Lög og reglugerðir:
Lög um veiðar með botn-
vörpu, flotvörpu og drag-
nót í fiskveiðilandhelg
inni 31
•
Ný fiskiskip:
Sæþór EA 101 38
Snorri Sturluson RE 219
Ingólfur Amarson RE
201 38
•
Fiskverð:
Verð á bolfiski 39
•
Forsíðumyndin er af
Ingólfi Arnarsyni
RE 201
ÚTGEFANDI:
fiskifélag íslands
höfn. ingólfsstræti
SÍMI 10500
RITSTJÓRN:
MÁR ELÍSSON (ábm.)
JÖNAS BLÖNDAL
AUGLÝSINGAR:
GUÐMUNDUR
INGIMARSSON
UMBROT:
GÍSLI ÓLAFSSON
PRENTUN:
ÍSAFOLD
ÁSKRIFTARVERÐ
600. u»
ÁRGANGURINN
KEMUR ÚT
HÁLFSMÁNAÐARLEGA.
Valdimar Indriðason:
Togaraútgerðin 1973
Árið 1973 var mikið tíma-
mótaár í togaraútgerðinni. Á
árinu komu til landsins margir
nýir skuttogarar auk nokk-
urra stærri og minni skuttog-
ara, sem keyptir höfðu verið
nýlegir til landsins árið 1972.
Samtímis þessu hefir orðið til
tvískipting togaraflotans í
stærri og minni togara, eink-
um skuttogara. Þessi tvískipt-
ing verður um 500 brúttórúm-
lesta mörkin. Á hún rætur sín-
ar að rekja aðallega til þess,
að ólíkir kjarasamningar
gilda á minni og stærri togur-
um. F. í. B. gerir samninga
fyrir stærri togarana og ein-
stök útvegsmannafélög í L. í.
Ú., eða þau ásamt samband-
inu, gera samninga fyrir hina
minni. Frumorsök þeirra verð-
ur að telja þá, að vökulögin
gilda á hinum stærri togurum,
en ekki á hinum minni. Þetta
leiðir svo aftur til þess, að eig-
endur hinna minni togara eru
í hinum einstöku útvegs-
mannafélögum, eftir staðsetn-
ingu þeirra, en eigendur hinna
stærri eru allir í F. í. B., sem
er landsfélag. Þetta hefir svo
enn orðið til þess, að mjög
ólíkir kjarasamningar gilda á
þessum tveimur stærðarflokk-
um togara, eins og fyrr segir.
Um það má deila, hvort þessi
félagslega aðgreining togara-
eigenda eigi rétt á sér og þá
einnig hinir ólíku kjarasamn-
ingar, sem nú gilda. Þetta eru
atriði, sem áreiðanlega á eftir
að skoða betur, og reynsla
sem fæst á næstunni mun
skera úr um hver framvinda
verður.