Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1974, Blaðsíða 15

Ægir - 01.02.1974, Blaðsíða 15
Lög um veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni 1- gr. í fiskveiðilandhelgi íslands, eins og hún er ákveðin í reglu- gerð nr. 189 14. júlí 1972, skulu erlendum skipum bann- ^ðar allar veiðar samkvæmt ákvaeðum laga nr. 33 19. júní 1922, um rétt til fiskveiða í landhelgi. íslenzkum skipum eru bann- aðar veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fisk- veiðilandhelginni, nema þar sem sérstakar heimildir eru veittar til slíkra veiða í lögum þessum. 2- gr. íslenskum skipum er heim- ilt að veiða með botnvörpu og flotvörpu innan fiskveiðiland- helginnar á þeim veiðisvæðum °g veiðitímum, sem nú verða greind, enda undanþiggi ráð- herra ekki tiltekin svæði slik- um veiðum með reglugerð. hegar rætt er um grunnlínu- Punkta, er miðað við grunn- hnupunkta samkvæmt reglu- gerð nr. 189/1972, sé annars ekki getið. í*ar sem í lögum þessum er ^tt um skip 350 rúmlestir og niinni, eru undanskildir skut- togarar með aflvél 1000 oremsuhestöfl eða stærri. A- Norðurland. 1. Frá línu réttvísandi norð- ur frá Homi (grunnlínupunkt- Ur 1), að línu réttvísandi norð- austur af Langanesi (grunn- línupunktur 6), er heimilt að veiða með botnvörpu og flot- vörpu allt árið, sbr. þó 3. gr. reglugerðar nr. 189/1972, utan línu, sem drengin er 12 sjó- mílur utan við grunnlínu sam- kvæmt reglugerð nr. 189/1972, nema á Húnaflóa utan við grunnlínu, sem drengin er frá Horni (grunnlínupunktur 1), að Selskeri (66°07,5' n. br. 21°31,2' v.lg.), og þaðan í Ás- búðarrif (gmnnlínupunktur 2). A. 2. Skipum 350 brúttó rúm- lestir og minni, er heimilt að veiða allt árið, sbr. þó 3. gr. rgl. nr. 189/1972, með botn- vörpu og flotvörpu utan línu, sem dregin er 9 sjómílur utan við grunnlínur, sem nefndar eru í A. 1., og takmarkast svæði þetta að vestan og aust- an svo sem i A. 1. greinir. A. 3. Heimilt er að veiða með botnvörpu og flotvörpu allt árið utan línu, sem dregin er í 9 sjómílna fjarlægð frá fjöru- marki Grímseyjar. A. 4. Heimilt er að veiða með botnvörpu og flotvörpu allt ár- ið utan línu, sem dregin er í 3ja sjómílna fjarlægð frá fjörumarki Kolbeinseyjar. B. Austurland. B. 1. Frá línu réttvísandi norð- austur af Langanesi (grunn- línupunktur 6), að línu rétt- vísandi austur af Hvalsnesi (64°24,1' n.br. 14°32,5' v.lg.), er heimilt að veiða með botn- vörpu og flotvörpu allt árið utan línu, sem dregin er 12 sjómílur utan við grunnlínu samkvæmt reglugerð nr. 189/ 1972. Einnig er heimilt að veiða með botnvörpu og flot- vörpu allt árið utan línu, sem dregin er í 4ra sjómílna fjar- lægð frá fjörumarki Hvalbaks. B. 2. Skipum, 350 brúttó rúm- lestir og minni, er heimilt að veiða allt árið með botnvörpu og flotvörpu utan línu, sem dregin er úr punkti 4 sjómílur réttvisandi norðaustur frá Langanesi (grunnlínupunktur 6) í punkt 12 sjómílur rétt- vísandi austnorðaustur frá Bjarnarey (65047,1' n.br. 14° 18,2' v.lg.). B. 3. Skipum, 350 brúttó rúm- lestir og minni, er heímilt að veiða allt árið með botnvörpu og flotvörpu utan línu, sem dregin er í 3ja sjómílna fjar- lægð frá fjörumarki megin- landsins milli lína, sem dregn- ar eru réttvísandi aust-norð- austur af Bjarnarey og rétt- vísandi aust-norðaustur af Ós- fles (65°37,8' n.br. 13°55,3' v. lg.). C. Suðausturland. C. 1. Frá línu réttvísandi aust- ur af Hvalsnesi (64024,1' n.br. 14°32,5' v.lg.), að línu réttvís- andi suður af Lundadrang Æ GIR — 31

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.