Ægir - 01.02.1974, Blaðsíða 9
Féll nú verðið og sölur urðu tregari. Fisk-
rannsóknarstofnunin í Perú notaði nú veiði-
stoppið til rannsókna.
Að þeim loknum ráðlagði þessi stofnun að
dregið yrði úr veiðunum. Lagt var til að aðeins
800_ þúsund tonn yrðu veidd á tímabilinu apríl/
maí, og síðan yrðu veiddar 2 milljónir tonna
frá september til desember, þannig að heildar-
Veiði á árinu yrði aðeins 4 milljónir tonna
samtals. (Þegar mest var veitt í Perú nam
ársveiðin 12 milljónum tonna). Nú hófust veið-
ar aftur þann 9. apríl. Kom þá fljótt í ljós að
ástandið var ekki gott. Er skemmst frá því
aftur undantekning við suðurströndina á litlu
veiðst samtals 1,6 milljónir tonna sem gáfu
326 þúsund tonn af mjöli.
Var nú bönnuð veiði af stjórnarvöldunum og
akveðið að þær skyldu ekki hefjast að nýju
fyrr en í októbermánuði. Þó var gerð undan-
tekning frá þessu banni á litlu svæði í Suður-
Perú. Perúmenn ákváðu nú að skipta mjöl-
framleiðslunni þannig, að 90 þúsund tonn
skyldu ganga upp í gamla óuppfyllta sölu-
samninga á lágu samningsverði. Um 100 þús-
und tonn voru þegar seld á heimsmarkaðinn
nokkuð fór á heimamarkaðinn. Afgangur-
mn var óseldur þegar hér var komið.
Fór nú verðið aftur að hækka.
I byrjun maímánaðar var allur fiskmjöls-
iðnaðurinn í Perú settur undir stjórn ríkisins
°g hafa öll firmun verið sameinuð í eina stofn-
un undir nafninu „Pescaperu." í maímánuði
komst proteineiningin uppí £3,40 og mun hafa
ftað hámarki í júlí og komst þá upp í £4,80.
Orsökin fyrir þessari miklu hækkun var sú að
. andaríkjastjórn ákvað að leyfa aðeins 40%
utflutning af þeim samningum sem búið var
að. &era um útflutning frá Bandaríkjunum af
sojamjöli og skyldi þetta gilda til 15. október
973. Afleiðingin af þessu varð sú, að mjög
erfitt varð um útvegun á proteini í fóður-
ondur í hinum ýmsu löndum. Þegar kom
fram í ágúst fór verðið að lækka og hefir verið
rúmlega £4,00 út árið.
Þann 7. nóvember bannaði ríkisstjórnin í
Perú útflutning á mjöli, en þá var lítið eftir
í landinu af marz/apríl framleiðslunni. Þá
ógilti stjórnin einnig alla eldri samninga um
mjöl sem óuppfylltir voru.
Margir rannsóknarleiðangrar og tilrauna-
veiðar voru framkvæmdar bæði yfir sumar-
mánuðina og haustmánuðina allt til áramóta.
Árangurinn varð sá að ekki þótti ráðlegt að
hefja veiðar á öllu þessu tímabili. Þó var gerð
aftur undantekning við suðurströndina á litlu
svæði og hefir árangur þar verið mjög óveru-
legur.
Nú er gert ráð fyrir að veiðar muni hefjast
í marzmánuði næstkomandi. Herma fregnir að
vart hafi orðið við mikið magn af ansjósu
meðfram allri ströndinni. Enginn vafi er á
því, að ef veiðarnar fara vel af stað, þá mun
verð á mjöli lækka. Hve mikil lækkunin verð-
ur fer eftir því hve mikið verður veitt og auð-
vitað líka eftir því, hve hátt verð Perúmenn
setja á mjölið. Sjálfsagt mun reynsla undan-
farinna ára hafa kennt Perúmönnum það, að
hyggilegra er að veiða minna og ná hærra
verði og hlífa þannig fiskstofninum.
Hér hefur aðallega verið rætt um Perú sem
afgerandi aðila hvað snertir verð á fiskmjöli,
en þó líka minnst á sojamjölið. Vitanlega
veldur hér lika ákaflega miklu framleiðsla og
verðlag á öðrum fóðurvörum, sem keppa við
fiskmjölið. Vil ég ekki og tel mig ekki geta
spáð neinu um þetta fram í tímann. Þá ber
einnig að hafa í huga hækkun á verði olíu og
takmörkun á framleiðslu hennar. Verður óef-
að um mikla hækkun á framleiðslukostnaði og
flutningskostnaði að ræða af þessum sökum.
Einnig ber að geta hinna sífelldu breytinga
á gengi hinna ýmsu gjaldmiðla í heiminum,
en þessar breytingar valda öryggisleysi og
hafa áhrif á verðmyndunina.
ÞEIR FISKA
SEM RÖA MEÐ VEIÐARFÆRIN FRÁ
SKAGFJÖRÐ
ÆGIR — 25