Ægir - 01.02.1974, Page 12
að veruleika, þarf að búa til afkastameiri
vélar.
Við þá loðnuvinnslu, sem hér hefur verið
lýst, kom allmikill úrgangur, sem látinn var
í mjölvinnsluverksmiðju.
Loðnunni, sem unnin var, var pakkað í 12
og 16 Ibs. blokkir og frystar á plötum. Það
er einnig hægt að raða blokkunum í bakka og
hraðfrysta þær á plötufrysti eða blásara-
frysti.
Loðnuveiðar geta orðið hagkvæmar fisk-
veiðar fyrir Nýfundnalandsmenn og Kanada-
menn, og mjög góð og velþegin viðbót við
hina árstíðabundnu starfsemi frystihúsanna.
Frystihúsin þyrftu þá að geta fryst fiskinn
á hinum hefðbundnu veiðitímabilum og geymt
hann hálfunninn, þar til umhægðist og h:num
hefðbundnu veiðitímabilum lyki og haldið þá
áfram með vinnsluna.
Meginatriðið í framleiðslurannsóknum.
Þegar áætlunin var gerð um rannsóknir á
framleiðslu loðnuafurða, var ákveðið að þær
beindust mest að verndun aflans, bæði fyrir
og eftir vinnslu. Sú reynsla sem menn höfðu
af síldar- og makrílsvinnslu, færði mönnum
heim sanninn um, að gæði þeirrar loðnu, sem
til verksmiðjanna og vinnslustöðvanna bær-
ist, væri mest komin undir meðferð á loðn-
unni fyrir vinnsluna.
Athugað var hversu lengi aflinn geymdist
óskemmdur í kössum með ferskvatnsís, köss-
um með kældu saltvatni og í kældu saltvatni,
þar sem sýrustigið var lækkað niður í ph=
5,0 með kolsýrlingsgasi.
Fylgzt var með breytingum sem urðu við
geymsluna bæði þeim sem sýnilegar voru og
eins þeim sem mælanlegar voru með efna-
greiningum, sem sýndu hlutfall hinna ýmsu
feitiefna, og hvemig þau breyttust við geymsl-
una. Þær niðurstöðum, sem fengust við bessar
athuganir komu á óvart. Öfugt við það sem
búast hefði mátt við, eftir því sem áður var
vitað um af sams konar rannsóknum á
geymslu annarra fisktegunda, þá skemmdist
hrygningarloðna af grunnslóðinni hraðast í
kældu saltvatni (-f-1 til +1°C) blönduðu kol-
sýrlingi (CO1) (4 daga), lítið eitt hægar í
kældu saltvatni án kolsýrb'ngs (5 daga) en sú
aðferðin, sem virtist halda loðnunni lengst
óskemmdri var að ísa hana í kassa, en þá
var hún í svipuðu ástandi eftir 9 daga, eins
Annwr tvílembinganna með nótina.
og 4—5 daga með hinum aðferðunum. Það hafði
verið búizt við því, áður en rannsóknir þessar
hófust, að bezt yrði að landa loðnunni í tanka
með kældu saltvatni, og menn losnuðu bá við
það puð, að vera sífellt að ísa og endurísa. En
sem sagt, þær rannsóknir sem enn hafa farið
fram sýna, að þetta er ekki svo.
Með tilliti til aðstæðna við Austur-Ný-
fundnaland þar sem veiðitíma er stuttur, ber
að huga að þeim möguleika, að frysta loðnuna
í blokkir meðan aðalveiðitíminn, sex vikur,
stendur yfir, og þíða hana síðan upp og vinna
hana, þegar kæmi að dauða tímanum hjá
vinnslustöðvunum.
Við, þær tilraunir verða athugaðar þær
gæðabreytingar sem verða bæði í frystu blokk-
unum og 1-punds neytendapökkunum við
geymslu frá tveimur og uppí sex mánuði. Til
að ljúka þessum rannsóknum verða nokkrar
blokkir húðaðar (glasseraðar) með efnum eins
og methylsellulósa, alginötum, saltvatni og
ferskvatni til að stemma stigu við þróuninni,
sem búast má við.
Tilraunir til vöruþróunar.
Það koma svo sem margar aðferðir til
greina við loðnuvinnslu, sumar án fordæmis,
aðrar sem aðlögun hefðbundinna aðferða, eða
einhver þeirra aðferða sem notaðar eru við
vinnslu síldar og makríls.
Margar hinna hefðbundnu verkunaraðferða,
eins og söltun, reyking og þurrkun voru end-