Ægir - 15.03.1974, Blaðsíða 20
Vikan 24. febr. til 2. marz
Mjög lítil veiði var fyrri part vikunnar
vegna verkfalls og löndunarerfiðleika. Bátar
biðu með fullfermi á flestum höfnum allt frá
Raufarhöfn suður um til Faxaflóahafna.
Nokkur skip fengu afla austur við Ingólfs-
höfða og sigldu með hann til Vestmannaeyja
og Austfjarðahafna. Engin veiði var á vestur-
svæðinu.
Miðvikudaginn hinn 27. febr. leystist verk-
fallið og vinna hófst á ný, en óhagstæð veðr-
átta hamlaði nokkuð veiðum seinni part vik-
unnar, en þá voru aðalveiðisvæðin sem fyrr
austan og vestan Ingólfshöfða svo og í Faxa-
flóa og Breiðafirði.
Laugardaginn 23. febr. var bezti veiðidag-
ur vikunnar, en þá fengu 35 skip samtals 7350
lestir.
Vikuaflinn varð samtals 32.813 lestir og þá
höfðu 97 skip fengið 1000 lestir eða meir og
loðnu verið landað á 25 höfnum viðsvegar um
landið.
í vikulokin nam heildarafli frá vertíðar-
byrjun samtals 340.006 lestum, en á sama tíma
í fyrra 219.603 lestum, en þá var vitað um að
86 skip höfðu fengið einhvern afla.
Aflahæsta skipið var Guðmundur RE 29,
en skipstjórar á því voru þeir Hrólfur Gunn-
arsson og Páll Guðmundsson, er skipts hafa
á um skipsstjórn.
Aflahæstu skipin:
Lestir
1. Guðmundur RE ........ 10.939
2. Börkur NK ........... 10.267
3. Eldborg GK ............... 8.189
4. Gísli Árni RE............. 8.169
5. Ásgeir RE ................ 6.707
6. Súlan EA.................. 6.608
7. Heimir SU ................ 6.392
8. Hilmir SU ................ 6.265
9. Pétur Jónsson KÓ........ 6.054
10. Fífill GK ................ 6.030
Á loðnuvertíðinni hefur loðnu verið landað
á 25 höfnum og birtist hér listi yfir þær:
Lestir
1. Vopnafjörður ........... 16.207
2. Seyðisfjörður .......... 34.063
3. Neskaupstaður .......... 30.486
4. Eskifjörður ............ 18.344
5. Reyðarfjörður .......... 12.167
6. Fáskrúðsfjörður.......... 8.668
7. Stöðvarfjörður .......... 9.193
8. Breiðdalsvík ............ 4.681
9. Djúpivogur .............. 8.061
10. Höfn Hornafirði ........ 15.237
11. Vestmannaeyjar ......... 56.180
12. Þorlákshöfn ............ 14.443
13. Grindavík .............. 20.356
14. Sandgerði .............. 10.325
15. Keflavík ............... 13.304
16. Hafnarfjörður ........... 7.397
17. Reykjavík .............. 21.131
18. Akranes ................ 17.496
19. Patreksfjörður ............ 961
20. Tálknafjörður ............. 970
21. Súgandafjörður .......... 2.662
22. Bolungarvík ............. 2.662
23. Siglufjörður ............ 8.585
24. Krossanes ................. 417
25. Raufarhöfn .............. 7.227
ÞEIR FISKA
SEM RÖA MEÐ VEIÐARFÆRIN FRÁ
SKAGFJÖRÐ
Æ GIR — 96