Ægir - 15.03.1974, Blaðsíða 23
Hydroforkerfi, bæði sjó- og
ferskvatns-, er frá Bryne Mek.
Verksted. Stærð geyma um
200 lítrar. Einn olíukyntur
ketill með tveimur 3 KW raf-
magnshitaelementum er fyrir
heitt vatn og miðstöðvarofna.
Botngeymar fyrir brennsluoliu
hafa „centralt" kælikerfi fra
Sigurd Sörum.
Stýrisvél er rafstýrð vökva-
knúin frá Frydenbö, gerð HS
20 A, með hámarksvægi 4000
kgm.
Vindubúnaður.
Vindubúnaður skipsins er
frá Hydraulik Brattvaag
A/s og er vökvaknúinn
(lágþrýstikerfi 25 kg/cm* 2).
Togvinda er af gerðinni
2D2A8 og er aðskilin í tvær
vindur (splitvinsje). Hvor
vinda hefur eina togtromlu,
sem tekur um 850 faðma af
3 y4" vir, og eina hjálpar-
tromlu og spilkopp. Á vindu
eru tvö hraðastig. Togátak á
miðja togtromlu (900 mm*5)
er 6,0 t. og vírahraði 85 m/
niín. hvor vinda. Staðsetning
n togvindum er út við síður,
sitt hvorum megin við vörpu-
rennu, nokkuð aftarlega.
Fremst á efra þilfari er akk-
eris- og grandaravinda, gerð
B6, með 2 keðjuskífum og 2
tromlum. Aftarlega á togþil-
fari er Kapstan, gerð CA4,
togátak 3 t. Fyrir netsjár-
tæki er kapalvinda.
Á deiligír framan á aðalvél
eru fjórar G 19 lágþrýstidæl-
Ur- Hver dæla skilar um 1400
1/mín. miðað við 210 sn/min.
°S aflþörf dælu er 90 hö. Við
aðra hjálparvélina er G 156
lágþrýstidæla.
Fjarstýring er á togvindum
°g tromlum á grandaravindu
frá brú og einnig má f jarstýra
grandaratromlum frá afturþil-
fari. Kúplingu á deiligír fyrir
vindudælur er stjórnað frá
brú. í brú er unnt að lesa átak
á togvírum.
Vinnuþilfar.
Fiskilúga á efra þilfari er
vökvaknúin og opnast upp.
Vökvaknúið hlið lokar skut-
rennu, eftir að pokinn hefur
verið innbyrtur. Fiskmóttaka
á neðra þilfari er um 23 m3 *
að stærð og skipt í fjögur hólf
með stíuborðum. Blóðgaður
fiskur fer siðan á tveimur
færiböndum upp í 4 blóðgun-
arker með vökvaþrýstibúnaði
á botni kerjanna. Með þessum
búnaði eru kerin losuð og fisk-
urinn heldur áfram fram á að-
gerðarborð, en eftir aðgerð fer
hann eftir færiböndum inn í
þvottavél frá Skeide og síðan
niður í lest. Affallsrennur
(slógstokkar) fyrir borð eru
bæði við aðgerðarborðin og við
fiskmóttöku. Lifrarbræðslu-
tæki og lýsisgeymir eru í skip-
inu.
í skipinu er ísvél frá Fin-
sam, gerð FIP-6 IM 22S, sem
framleiðir um 7 t. á sólar-
hring. ísklefi, sem staðsettur
er fremst á vinnuþilfari, tekur
um 41/2 t. Fyrir utan ísvél og
ísklefa er svo ísblásturskerfi í
lest og er hér um að ræða
samskonar kerfi og í „Flekke-
fjord“-skuttogurunum og lýst
er í Ægi (4. tbl. ’73) Loft á
vinnuþilfari er einangrað og
klætt með krossviðsplötum
með plasthúð. Loftræsting er
fyrir vinnuþilfar.
Fiskilest.
Stærð fiskilestar er um
300 m3 og útbúin fyrir
fiskkassa. Gólf fiskilestar er
einangrað með polyurethan-
plötum og steypt ofan á. Síð-
ur, þil og loft er einangrað
með glerullarmottum og klætt
er með „Warkaus-plötum, sem
meðhöndlaðar eru með epoxy-
málningu.
Ein losunarlúga er fremst á
fiskilest (2200x2000 mm) og
er aðgangur að henni frá lúgu
á hvalbaksþilfari, framan við
brú.
Kælikerfi er fyrir lest frá
Nash Kelvinator með nægileg
afköst til að halda 0°C hita-
stigi við 25°C sjávarhitastig
og 35 °C lofthita. Kælileiðslur
eru í lofti lestar og kælimiðill
er Freon 12. Kæliþjöppur eru
tvær frá Dorin, gerð 10, af-
köst ca. 18000 kcal/klst. við
-h10/15/25°C, hvor þjappa.
Ibúðir.
Undir neðra þilfari í fram-
skipi eru 3 eins manns og tveir
2ja manna klefar. Á neðra
þilfari er borðsalur, eldhús,
matvælageymsla, 5 eins manns
klefar, tveir 2ja manna klef-
ar salemis- og þvottaaðstaða.
í matvælageymslu er 470 1.
frystikista og 415 1. kæliskáp-
ur.
Einangrun íbúða er yfirleitt
100 mm steinull. Veggir og
loft klætt með spónaplötum
með álímdu plasti.
Vistarverur eru hitaðar upp
með miðstöðvarofnum, nema
fáein rúm, sem hituð eru með
rafmagnsofnum. Einn loft-
ræstingarblásari er fyrir vist-
arverur, sem blæs loftinu inn.
Loftið er forhitað um 10°C.
Ennfremur er sogblásari fyrir
eldhús og snyrtiaðstöðu.
Æ GIR — 99