Ægir - 15.02.1975, Qupperneq 14
m. kr. og reyndist meðalverðið kr. 51.63 pr.
kg. á móti kr. 42.59 pr. kg árið áður.
Til Bretlands fóru togaramir 20 söluferðir
með 2.535 tonn, sem seldust fyrir 145.4 m.
kr. og reyndist meðalverðið kr. 57.35 pr. kg.
Engar sölur fóru fram 1973 vegna stöðvun-
ar brezkra hafnarverkamanna á löndun úr ís-
lenzkum fiskiskipum, sem stóð fram til 13.
nóv. þ. á.
í Belgíu var seldur einn farmur vegna lönd-
unarbanns, sem skall á í V-Þýskalandi 21. nóv.
eða daginn, sem skipið átti að selja þar. Fór
það því til Belgíu og seldi fisk sinn 27.—28.
nóv. 283 tonn fyrir 15.8 m. kr. og var með-
alverðið kr. 56.00 pr. kg.
Verðsamanburðurinn hér að ofan í V-
Þýzkalandi er óraunhæfur vegna mikils
óstöðugleika á gengi íslenzku krónunnar
gagnvart þýzka markinu. Samanburður milli
ára í mörkum sýnir, að verðhækkunin þar
nam að meðaltali rúmlega 15%.
Svo sem kunnugt er strönduðu samningar
við V-Þjóðverja um tímabundnar veiðiheim-
ildir þýzkra togara innan 50 mílna fiskveiði-
markanna seint í nóvember s. 1. Er ég og
aðrir togaraútgerðarmenn þeirrar skoðunar,
að það hafi illa farið. Um hag togara og ann-
arra skipa, sem sigldu til E. B. E. landanna
með ísfisk, af lækkun og nánast niðurfellingu
tolla vil ég vísa í grein mína í Ægi, 1. tbl.
1974, en þess má þó geta, að ef samkomulag
hefði tekizt væru tollar af ísfiski nú væntan-
lega 3.7%, nema 2% af karfa í stað 15%
og 8% eins og nú er, nema nokkru lægri í
Bretlandi ennþá.
Má af þessu nokkuð marka, hvílíka þýð-
ingu þetta hefur, þegar þess er gætt, að ætla
má að löndunarkostnaður erlendis ásamt toll-
um, nemi að meðaltali um 25% af brúttó-
söluverðmæti. Og við það bætast svo 11.2%
í útflutningsgjöld hér heima. Skilaverð til
útgerðar er því um 63%—65% af brúttósölu-
verði.
FISKVERKENDUR
ÚTGERÐARMENN
ALLAR
TEGUNDIR
KLÓRTÆKJA fyrir
VINNSLUSTOÐVAR,
FISKISKIP og BÁTA
EINNIG: KLÓRMÆLITÆKI,
KLÓRGASGRÍMUR.
GASKLÓRTÆKI.
BÁTAKLÓRTÆKI
VATNSKLÓRTÆKI
#>##ÁRNIÓLAFSSON &CO.SÍMI 40088 ####
48
ÆGIR