Ægir - 15.04.1976, Side 22
Reglugerð
um dragnótaveiðar
1. gr.
Lágmarksstærð möskva í
poka dragnótar skal vera 170
mm. Ávallt skulu a. m. k.
öftustu 5 metrar dragnótar-
innar vera úr 170 mm riðli.
Lágmarksmöskvastærð í öðr-
um hlutum dragnótar, en í 1.
mgr. greinir, skal vera 135
mm.
2. gr.
Óheimilt er að nota nokk-
urn þann útbúnað, sem þreng-
ir eða herpir á nokkum hátt
möskva þá, sem lýst er í 1. gr.
reglugerðar þessarar, þó skal
ekki teljast ólögmætt að festa
undir poka dragnótar 'segldúk,
net eða .annað efni í því skyni
að forðast eða draga úr sliti,
þó þannig, að þessir slitvarar
eða hlífar séu aðeins festar að
framan og á hliðunum við
pokann.
3. gr.
Þegar möskvi er mældur,
skal hann teygður horna á
milli eftir lengd netsins. Skal
þá flöt mælistika, sem er jafn-
breið leyfilegri lágmarks-
möskvastærð (sbr. 1. gr.) og
2 mm þykk, komast auðveld-
lega í gegnum möskvann, þeg-
ar netið er vott.
4. gr.
Við veiðar með dragnót í ís-
lenskri fiskveiðilandhelgi, er
óheimilt að nota hlera og hvað
eina, sem gæti komið í þeirra
stað til útþenslu vængjanna.
5. gr.
Með mál, sem rís út af brot-
um gegn ákvæðum reglugerð-
ar þessarar svo og skilyrðun%
sem sett kunna að verða í leÝ1
isbréfi til dragnótaveiða, s^a
farið að hætti opinberra rnála
og varða brot refsingu saru
kvæmt 12. gr. laga nr. 102 2
desember 1973.
6- gr.
Reglugerð þessi er sett sam
kvæmt heimild í 9. gr. laga lir'
102 27. desember 1973 urfI
veiðar með botnvörpu, fl°.
vörpu og dragnót í fiskveið1
landhelginni, til þess að öðlas
gildi þegar í stað og birtist t1
eftirbreytni öllum þeim, sern
hlut eiga að máli. ,.
Jafnframt er felld úr gu
reglugerð nr. 278 9. septernbe1
1974 um dragnótaveiðar.
Sj ávarútvegsráðuneytið
26. mars 1976.
Matthías Bjarnason^,
Jón B. Jónass011'
RAFDRIFIN BRÝNI
ARNIOLAFSSON &CO.SIMI 40088
fyrir fiskvinnslustöðvar
fiskiskip og bóta
Það er ekki óstæðulaust, að
MC rafdrifnu brýnin eru
óðum að leysa gamla
hverfisteininn af hólmi um
allt land, því að þau eru
MARGFALT FLJÓTVIRKARI
og AUKA ENDINGU
HNIFANNA:
Fyrir 110 og 220 volt.
Brýning tekur aðeins 1—2
mínútur.
Stærð aðeins 25x20x15 cm.
Einnig: Hausingar hnífar,
flökunarhnífar, flatnings-
hnífar.
136 — Æ G I R