Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1979, Qupperneq 19

Ægir - 01.01.1979, Qupperneq 19
Jón Jónsson: Astand fiskstofnanna jafnstöðuafli Fiskimálastjóri fór þess á leit við Hafrannsóknastofn- unina, að við gerðum Fiski- þingi grein fyrir hugmyndum okkar varðandi hámarksaf- rakstur fiskstofna á Islands- miðum, Það er erfitt að gera svo viðamiklu efni full ski! í stuttu máli. en vissulega er hér um að ræða grund- vallaratriði varðandi skiln- ing okkar á framtíð islenskra fiskveiða og þótt þekking okkar á þessi sviði sé á engan hátt nógu fullkomin. ætla ég samt að freista þess. að fara um þetta nokkrum orðum. Reynsla undanfarinna ára hefur ljóslega sýnt. að stærð hinna einstöku fiskstofna eru ákveðin takmörk sett. Við höfum þegar mörg áþreifanleg dæmi þess. að takmarka- laus veiði hefur eytt ýmsum stofnum svo mjög. að mörgár þarf til að byggja þá upp á nýjan leik. Skvnsamleg nýting fiskstofnanna er því eitt af megin viðfangsefnum íslenskra hafrannsókna. bæði í nútíð og framtíð. Ofnýting íslensku fiskstofnanna var ætíð veigamikil röksemd varðandi útfærslu fiskveiðilandhelginnar og af þeim sökum var þekking á ástandi þeirra og viðbrögðum gagnvart veiðum mjög mikilvæg. A meðan útlendingar nutu hér sömu aðstöðu og ís- lenskir fiskimenn var örðugt um vik að koma fram við- hlitandi friðunaraðgerðum. Sú saga er flestum í fersku minni og verður ekki rakin hér. S ú höfum við hins vegarsjálfsforræði varðandi nýtingu beirra stofna, sem halda sig innan íslenskrar fiskveiði- lógsögu og ber því skvlda til að hagnýta þá á skynsam- legan hátt, svo þeir gefi af sér sem mestan arð á hverjum tíma. Hvað er þá skvnsamleg nvting fiskstofnanna? Mjögein- löld skilgreining er. að þaá sé sú sókn. sem hvorki tekur °I mikið né heldur of lítið úr ákveðnum stofni. Sóknin er byggð upp af mörgum þáttum; sumir eru tnælanlegir, en mjög erfitt er að meta aðra. Við vitum um stærð skips og vélarorku; við getum greint á milli veiði- hæfni reiðarfæra af ýmissi gerð. en suma þætti er ill- mögulegt að mæla. svo sem aukningu í afla vegna fisk- leitartækja og ekki síst reynslu eða veiðihæfni einstakra skipstjórnarmanna. Frá fiskifræðilegu sjónarmiði eru því beinar aflatak- markanir æskilegra stjórnunartæki en sóknartakmark- anir sem byggjast á fjölda veiðiskipa. fjölda veiðidaga o.s.frv. Af þessum sökum er nauðsynlegt að vita hver er af- rakstursgeta hinna einstöku stofna til langs tíma og haga veiðum í samræmi við það. Við tölum gjarnan um hámarksafrakstur ákveðins fiskstofns eða revndar er réttara að segja hámarksaf- rakstur á niðja. Nýlega rakst ég á orðið jafnstöðuafli í þessu sambandi og mun nota það í þessu erindi. Jafn- stöðuafli er skýrgreindur sem það aflamagn, er ná má til frambúðar úr ákveðnum fiskstofni með tiltekinni sókn. þegar nýliðun ungfisks. þyngd og dánarstuðlar eftir aldri eru með tilgreindum hætti. Takmark okkar er því að ná jafnstöðuafla úr hinum einstöku stofnum á íslandsmiðum. Ég mun nú í örstuttu máli ræða um botnlæga fiska og síld hér við land. ástand þeirra við núverandi sókn svo og þær hugmyndir. sem við gerum okkur um jafnstöðu- afla einstakra tegunda. Þorskstofninn Heilclarþorskaflinn við ísland á árunum 1950-1977 var lægstur 345 þúsund tonn árið 1967 og hæstur 548 þúsund tonn árið 1954. Á síðast liðnum áratug hefur hins vegar átt sér stað sú óheillavænlega þróun. að stærð hins kynþroska hluta stofnsins hefur farið síminnkandi. Árið 1970 var þessi hluti stofnsins yfir 700 þúsund tonn. en hefur á undan- förnum árum verið um 200 þúsund tonn og með óbreyttri sókn er hætt við að hann muni enn minnka. Tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar varðandi þorsk- stofninn á undanförnum árum hafa því aðallega miðað að því að byggja upp hrygningarstofninn með því að draga úr heildarveiðinni og þá sérstaklega úr hinni óhóflegu smá- fiskveiði. Samkvæmt þeim aflatakmörkunum, sem stofnunin hefur lagt til. myndi hrygningarstofninn í ársbyrjun 1980 verða orðinn um 400 þúsund tonn eða 120 þúsund tonn- um stærri en ef ekkert væri aðhafst. Þessu er nú því miður ekki að heilsa og það gefur auga leið, að sá afli sem tekinn hefur verið umfram þær tillögur sem við höfum lagt fram. mun óhjákvæmlega seinka þeirri upp- byggingu stofnsins, sem við stefnum að. Til allrar hamingju hefur ekki ennþá komið til við- komubrests í stofninum, þrátt fyrir smæð hans, en við ÆGIR — 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.